Listinn yfir meidda leikmenn hjá meistaraflokki karla í handbolta er orðinn annsi langur en í síðasta leik slasaðist hornamaðurinn Grétar Þór Eyþórsson en hann meiddist á hné í leiknum gegn ÍR í bikarkeppninni í byrjun vikunnar. Kári Kristján Kristjánsson er einnig meiddur en spilaði samt sem áður með í leiknum gegn ÍR, en þeir félagar eru í viðtali við Morgunblaðið í dag.
Þá eru einnig meiddir Sigurbergur Sveinsson og Theodór Sigurbjörnsson sem hafa verið frá keppni um tíma. Sigurbergur gekkst undir aðgerð á ökkla í janúar og Theodór er slæmur í bakinu og hefur ekkert tekið þátt í síðustu leikjum liðsins. Fjórir fastamenn í byrjunarliði ÍBV í vetur og síðustu ár eru þar af leiðandi meira og minna frá keppni.