Hafnareyri hefur opnað á nýjum stað

Hafnareyri hefur flutt verkstæði sitt á Hlíðarveg 2 (Fiskiver). Á verkstæðinu starfa um 25-30 starfsmenn við hin ýmsu störf. Boðið var til opnunarteitis á föstudaginn hjá Hafnareyri.

Á efri hæð hússins er vinnslusalur, trésmíðaverkstæði,  lager og nýtt og glæsilegt starfsmannarými.  Á neðri hæðinni verða vélaviðgerðir, grófari vinna og geymsla.
Hafnareyri er ekki bara með verkstæði heldur býður uppá löndunar- og ísþjónustu. Kleifarfrost frystigeymslan á Eiðinu er rekin af Hafnareyri. Þar komast um 10.000 bretti í geymslu í einu fullkomnasta rekkakerfi heims. Hafnareyri er því alhliða þjónustufyrirtæki fyrir sjávarútveginn með um 45 starfsmenn í vinnu á hverjum degi.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.