Ein líkamsárás var kærð til lögreglu í liðinni viku en aðfaranótt sl. föstudags var lögreglu tilkynnt um að þrír menn væri að slást á Hvítingavegi. Þegar lögregla kom á staðinn voru átökin yfirstaðin. Þarna höfðu orðaskipti á milli þessara þriggja endað með átökum, voru tveir af þeim með áverka á eftir án þess þó að um alvarlega áverka væri að ræða. Einn af þessu mönnum leitaði til læknis. Málið er í rannsókn.
Einn ökumaður var stöðvaður í vikunni vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá liggja kærur fyrir vegna aksturs án ökuréttinda og vanbúnaðar á öryggisbúnaði bifreiðar.
Lögreglan vill minna ökumenn og eigendur bifreiða að huga að ljósabúnaði bifreiða sinna en nokkuð er um að bifreiðar séu eineygðar eða ljós vanstilt.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.