Frá Björgun vegna dýpkunar Landeyjahafnar

Vegna umræðu um framgang dýpkunar við Landeyjarhöfn og þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið á fyrirtækið að undanförnu er eftirfarandi komið á framfæri.

Frá því viðhaldsdýpkanir fyrir Landeyjarhöfn 2019–2021 voru boðnar út í haust og gengið til samninga við Björgun um verkefnið hafa ýmsir gagnrýnt Vegagerðina harkalega. Þá hafa einhverjir valið að gagnrýna Björgun fyrir frammistöðu við dýpkanir á þeim árum sem fyrirtækið og starfsmenn þess sáu um verkefnið. Síðustu daga hafa Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja, Páll Magnússon þingmaður og fleiri lýst vonbrigðum með framgang dýpkunarinnar og um leið hafa komið fram rangfærslur, samanburður við fyrri verktaka og fullyrðingar sem hvorki standast né eru málefnalegar.
Af umræðu í kjölfar fyrrnefnds útboðs má draga þá ályktun að lítið samráð hafi verið haft við heimamenn í Eyjum um þjónustustig vegna siglinga í Landeyjahöfn og tilhögun verksins sem Vegagerðin bauð út. Þar má til dæmis nefna að ekki var farið fram á að skip verktaka kæmu að dýpkunum yfir vetrarmánuðina þegar aðstæður gefast. Það olli greinilega miklum vonbrigðum.

Mjög eðlilegt er að Vestmannaeyingar vilji að Landeyjarhöfn nýtist fyrir siglingar allt árið um kring en frá upphafi hefur höfnin ekki staðist slíkar væntingar. Fjárfesting í nýjum Herjólfi, nýframkvæmdir við höfnina, dælubúnaður á landi og áframhald viðhaldsdýpkana með dæluskipum koma vonandi til með að bæta þessar samgöngur og auka tíðni siglinga. Enginn breytir þó stöðu landsins, veðri, sjávarföllum eða stýrir sandburði. Aðstæðurnar eru og verða krefjandi.

Vegna umræðu um stöðu og framgang dýpkunarframkvæmda nú í mars og eftir mælingar Vegagerðarinnar þann 18. mars bendir Björgun á að samkvæmt upplýsingum frá starfsmönnum Vegagerðarinnar hefur Herjólfur áður siglt um höfnina við það dýpi. Eðlilega er það samt undir stjórnendum Herjólfs komið hvenær siglt verður til Landeyjarhafnar.
Þá daga sem gefist hafa til dýpkunar það sem af er marsmánuði hefur áhöfn dýpkunarskipsins Dísu dælt tæplega 30 þúsund rúmmetrum úr höfninni. Afkastagetan er í samræmi við uppgefnar forsendur í tilboðsgögnum. Frátafir hafa verið verulegar vegna ölduhæðar, öldulengdar og dýpis miðað við stöðu sjávarfalla. Dýpkun hefur alls staðið í 136 klst., þar sem mesta ölduhæð var 2,3 metrar.

Gröfupramminn Reynir og efnisflutningapramminn Pétur Mikli eru til taks í Þorlákshöfn og verður Reynir dreginn í Landeyjarhöfn um leið og aðstæður leyfa. Fráleitt er að halda því fram að nú hafi Vegagerðin forsendur til riftunar á verksamningnum við Björgun. Vísað hefur verið til þess að á sama tíma í fyrra hafi skip Jan De Nul staðið sig betur og höfnin verið opnuð fyrr. Gögn um ölduhæð sýna að aldan var undir 1,3 metrum í 191 klukkustund 2.-12. mars 2018. En frá 6. til 18. mars á þessu ári hafa þær aðstæður aðeins varað í 46 klukkustundir. Á þessu er mikill munur og því rangt að halda því fram að aðstæður hafi verið prýðilegar í 10 daga eins og Páll Magnússon kallar það. Rétt er að tillit sé tekið til aðstæðna og að virðing sé borin fyrir mati skipstjórnarmanna á aðstæðum hverju sinni.
Björgun stóðst samanburð við hollenska fyrirtækið Jan De Nul samkvæmt útboðsgögnum. Hollenska fyrirtækið var vissulega með stærra skip að störfum við dýpkunina, en Björgun hefur hins vegar fleiri skip og mjög mikil afköst þegar skilyrði eru fyrir hendi. Páll Magnússon fullyrti á alþingi að skip Jan De Nul væri fimm sinnum stærri og því haldið að skipið skilaði þar með fimm sinnum meiri afköstum, en samkvæmt áreiðanlegum gögnum er það fjarri lagi. Skylt var að gefa upp afkastagetu í útboðsgögnum þó öðru sé haldið fram.

Björgun leggur metnað í að opna Landeyjarhöfn sem allra fyrst. Starfsmenn Björgunar hafa mikla reynslu við dýpkanir og þekkingu á aðstæðum í Landeyjahöfn gera sitt besta. Eðlilegt er að ætlast til þess að þeir sem láta sig málið varða, sér í lagi kjörnir fulltrúar fari ekki fram úr sér í umræðunni með rangfærslum og niðrandi ummælum.

Lárus Dagur Pálsson, framkvæmdastjóri Björgunar.

Nýjustu fréttir

Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?
Atli Steinn Arnarson semur við ÍBV
World Class mun rísa samhliða búningsklefunum
Skvísubúðin fagnar vori og sumri með fjölbreyttu vöruúrvali 
Stelpurnar æfa af krafti fyrir úrslitakeppnina
Vestmannaeyjar – staður þar sem fjölskyldan blómstrar
Sólarupprás og helgistund markaði páskadag í Eyjum
Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.