Nýir kjarasamningar verslunar- og verkafólks undirritaðir
Mynd/ASÍ
Mynd/ASÍ

Samninganefndir Samtaka atvinnulífsins og fulltrúa ríflega 100.000 félaga í 30 stéttarfélögum undirrituðu í gærkvöld kjarasamninga til þriggja ára og átta mánaða, eða til 1. nóvember 2022. Þá var kynntur svokallaður lífskjarasamningur ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins, sem ætlað er að tryggja launafólki enn frekari kjarabætur en kveðið er á um í kjarasamningnum sjálfum.

 Kjarasamningarnir gilda frá 1. apríl 2019 – 1. nóvember 2022
 Krónutöluhækkanir – 17 þúsund kr. hækkun á öll mánaðarlaun 1. apríl 2019
 Lægstu laun hækka mest – 30% hækkun á lægstu taxta
 Aukið vinnustaðalýðræði með möguleika á verulegri styttingu vinnutímans (mestu breytingar í tæpa hálfa öld)
 Eingreiðsla upp á 26 þúsund kr. sem kemur til útborgunar í byrjun maí 2019
 Skilyrði sköpuð fyrir verulegri vaxtalækkun á samningstímanum
 Skattbyrði hinna tekjulægstu lækkar um 10 þúsund kr. á mánuði

Almenn hækkun á mánaðarlaun fyrir fullt starf
• 1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
• 1. apríl 2020 18.000 kr.
• 1. janúar 2021 15.750 kr.
• 1. janúar 2022 17.250 kr.

Kauptaxtar hækka sérstaklega 
1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
1. apríl 2020 24.000 kr.
1. janúar 2021 23.000 kr.
1. janúar 2022 26.000 kr.

Á árunum 2020-2023 komi til framkvæmda launaauki að gefinni ákveðinni þróun á vergri landsframleiðslu á hvern íbúa.
Tenging við hagvöxt (hagvaxtarauki) tryggir launafólki hlutdeild í verðmætasköpuninni. Þetta ákvæði nýtist best þeim tekjulægri þar sem þessi hækkun fer af fullum þunga á taxtakaup og ¾ á önnur laun. Hagvaxtarauki getur hækkað taxtalaun um 3-13 þúsund á ári eftir því hvað verg landsframleiðsla á mann hækkar mikið á tímabilinu.
2,5% hækkun á aðra liði kjarasamninganna eins og bónusa 2020-2022.

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf
• 1. apríl 2019 317.000 kr. á mánuði
• 1. apríl 2020 335.000 kr.
• 1. janúar 2021 351.000 kr.
• 1. janúar 2022 368.000 kr

Desemberuppót (var 89.000 kr. 2018)
2019 92.000 kr.
2020 94.000 kr.
2021 96.000 kr.
2022 98.000 kr.

Orlofsuppbót fyrir hvert orlofsár (var 48.000 kr. 2018)
• 1. maí 2019 50.000 kr.
• 1. maí 2020 51.000 kr.
• 1. maí 2021 52.000 kr.
• 1. maí 2022 53.000 kr.

Eingreiðslan kemur sem sérstakt álag á orlofsuppbót árið 2019 uppá 26.000 kr. sem greiðist eigi síðar en 2. maí 2019.
Forsendur kjarasamninganna eru eftirfarandi:

1. Kaupmáttur launa hafi aukist á samningstímabilinu skv. launavísitölu Hagstofu Íslands.
2. Vaxtir lækki verulega fram að endurskoðun samnings í september 2020 og haldist lágir út samningstímann.
3. Stjórnvöld standi við gefin fyrirheit skv. yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninganna.

Forsendur kjarasamninga verða metnar í september 2020 og september 2021. Forsendurnefnd verður skipuð þremur fulltrúum frá hvorum samningsaðila.

Nýjustu fréttir

Herjólfur: Áætlun föstudagsins gefin út
ÍBV biðst afsökunar á ummælum í garð Hafdísar
Bókunarkerfi Herjólfs niðri eftir eldsvoða í Amsterdam
Andri og Elís Þór í lokahóp u-20 fyrir EM
Emil Gautason á skotskónum fyrir u-16 ára landslið Íslands
Besta byrjun nýliða í 15 ár
Dómkórinn heldur tónleika í Eyjum
Herjólfur III enn án haffærniskírteinis
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.