Unnið að dýpkun allan sólarhringinn

Unnið er að dýpkun Landeyjahafnar allan sólarhringinn þessa dagana og er Björgun með þrjú tæki í gangi, dæluskipið Dísu, dýpkunarprammann Reyni og með honum efnisflutningaskipið Pétur mikla. Unnið er á vöktum meðan færi gefst. Dýpið var mælt laugardaginn 6. apríl.Það hefur verið ágætur gangur í dýpkuninni hingað til en stíf austanátt og ókyrrð hafa tafið vinnuna í hafnarmynninu, segir í frétt á vef Vegagerðarinnar.

Því miður hefur svo spáin versnað frá því í síðustu viku og útlit fyrir að lengri tíma taki að opna höfnina en vonast var til. Eigi að síður verður unnið að dýpkun svo sem kostur er meðan fært er. Ómögulegt er að segja til um það nákvæmlega hvenær höfnin opnast fyrir Herjólf.

Dýpið var mælt á laugardag og má sjá niðurstöðurnar hér á vefnum , en á síðunni Dýptarmælingar Landeyjahafnar má sjá nýjustu mælinguna hverju sinni sem og eldri mælingar.Það sem ræður mestu um möguleikana á dýpkun er ölduhæðin og síðan einnig öldulengdin. Þannig getur stundum verið þær aðstæður að veðrið er gott en aldan áfram mikil sem kemur þá í veg fyrir að skipin geti athafnað sig.

Nýjustu fréttir

Herjólfur: Áætlun föstudagsins gefin út
ÍBV biðst afsökunar á ummælum í garð Hafdísar
Bókunarkerfi Herjólfs niðri eftir eldsvoða í Amsterdam
Andri og Elís Þór í lokahóp u-20 fyrir EM
Emil Gautason á skotskónum fyrir u-16 ára landslið Íslands
Besta byrjun nýliða í 15 ár
Dómkórinn heldur tónleika í Eyjum
Herjólfur III enn án haffærniskírteinis
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.