FÍV stofnun ársins 2023
FIV_Helga_kristin_kolb
Helga Kristín Kolbeins er skólameistari FÍV. Eyjar.net/TMS

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hlaut í gær viðurkenningu í könnun Sameykis um stofnun ársins 2023. FÍV er fyrirmyndarstofnun og er í fyrsta sæti  í flokki minni stofnanna.

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hefur síðastliðinn áratug verið með þeim efstu í þessari könnun og þetta er í þriðja sinn sem skólinn fær viðurkenninguna „Stofnun ársins“. Við í FÍV erum virkilega stolt yfir þessari niðurstöðu.

Thelma B. Gísladóttir aðstoðarskólameistari og Elísabeth Ruth Guðmundsdóttir forstöðumaður bókasafns FÍV veittu viðurkenningunni viðtöku við hátíðlega athöfn hjá Sameyki.

Titlana Stofnun ársins, hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í þeim níu þáttum sem könnun Sameykis byggir á að mati starfsmanna þeirra. Um er að ræða mat á innra starfsumhverfi stofnana og starfsstaða.

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Reykjavíkurborgar. Könnunin veitir mikilvægar upplýsingar um styrkleika og áskoranir í starfsumhverfi stofnana, starfsfólki til hagsbóta.

Á hverju ári tekur allt starfsfólk skólans, óháð félagsaðild, þátt í könnuninni sem fer þannig fram að spurningalisti er lagður fyrir starfsfólk á netinu. Mælingin nær yfir níu ólíka þætti og þannig fæst heilsteypt mynd af innra starfsumhverfi stofnana. Þeir níu þættir sem eru mældir eru: stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægja og stolt og jafnrétti.

Þess má geta að þetta er ekki í fyrsta sinn sem FÍV er valin Stofnun ársins, líkt og fréttirnar hér að neðan staðfesta. Til hamingju allir í FÍV.

https://eyjar.net/fiv-valin-stofnun-arsins/

https://eyjar.net/2020-10-14-framhaldsskolinn-i-vestmannaeyjum-hlytur-nafnbotina-stofnun-arsins/

https://eyjar.net/2018-05-09-framhaldsskolinn-i-vestmannaeyjum-stofnun-arsins/

https://eyjar.net/2015-05-09-framhaldsskolinn-i-eyjum-hastokkvari-arsins/

Nýjustu fréttir

Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.