Áfram í undanúrslit eftir sannfærandi sigur á bikarmeisturum FH

Eyjamenn fengu FH í heimsókn í gær í öðrum leik liðanna í áttaliða úrslitum Olís-deildarinnar. ÍBV sigraði fyrri leikinn með fimm marka munn 23-28. Það var því að duga eða drepast fyrir FH.

Heimamenn tóku fljótlega frumkvæðið í leiknum leiddu nánast allan leikinn og höfðu sjö marka forystu í hálfleik 19-12. Síðari hálfleikur var svo meira af því sama og á tímabili virtust liðin skora að vild, lokatölur 36-28.

Sigurbergur Sveinsson var markahæstur í liði ÍBV með 8 mörk. Aðrir markaskorarar voru Gabríel Martinez – 6, Kristján Örn Kristjánsson – 5, Hákon Daði Styrmisson – 5, Kári Kristján Kristjánsson – 4, Dagur Arnarsson – 3, Elliði Snær Viðarsson – 2, Fannar Þór Friðgeirsson – 1, Magnús Stefánsson – 1 og Friðrik Hólm Jónsson – 1.

Björn Viðar Björnson, markvörður ÍBV, hefur átt stórleik í einvíginu en þrátt fyrir að skoruð væru 28 mörk í gær varði hann 12 skot í leiknum og 21 í fyrri leik liðanna. Af sex vítum í einvíginu varði hann fjögur.

Mögnuð stemning var á leiknum í gær undir stjórn Hvítu-riddaranna. Nú er bara að treysta á hana áfram og bæta í þegar ÍBV mætir annað hvort Haukum eða Stjörnunni í undanúrslitum, en þau lið mætast í oddaleik á morgun miðvikudag.

Nýjustu fréttir

Tvíþætt staða orkuskipta
Netöryggisfræðsla fyrir foreldra grunn- og framhaldsskólanemenda
Áskriftarkort sundlaugagesta framlengd
Eyjarnar landa fyrir austan
Sýningin Geological Rhapsody opnar á morgun
Nýtt fyrirkomulag í Uppbyggingarsjóði Suðurlands
Íþróttahátíð ÍBV í kvöld
Bærinn niðurgreiðir heimsendan mat um 53%
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.