Vegagerðin hefur ekki rift samningnum við skipasmíðastöðina

„Vegagerðin hefur ekki rift samningnum við skipasmíðastöðina Crist S.A.“ sagði G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi hjá Vegagerðinni í samtali við Eyjafréttir. Eyjar.net sögðu frá því núna fyrr í dag að Vegagerðin hefði rift samningnum við stöðina.

„Vegagerðin hefur hins vegar innkallað bankaábyrgðir sem annars myndu renna út í dag og höfðu ekki verið framlengdar. Í dag kemur í ljós hvort skipasmíðastöðin framlengir ábyrgðirnar en viðræður við þá eru í gangi og ekki hægt að tjá sig um gang mála í þeim. Vegagerðin átti engan annan kost en innköllun ábyrgða til að tryggja stöðu sína“, sagði G. Pétur í samtali við Eyjafréttir.

Nýjustu fréttir

Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.