Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra undirritaði í dag samning við Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu um aukið eftirlit með heimagistingu og rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi. Samningurinn felur í sér 30 m.kr. viðbótarframlag til heimagistingarvaktarinnar og er hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að styðja við framboðshlið húsnæðismarkaðarins á suðvesturhorni landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu.
„Það er mikilvægt að halda vel utan um heimagistingu og er þessi samningur liður í þeirri vegferð. Ég vænti mikils af samstarfinu við Sýslumannsembættið,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir.
Markmiðið er að hafa hvetjandi áhrif á einstaklinga til að skrá skammtímaútleigu sína hjá sýslumanni og endurnýja skráningu árlega. Heimagisting umfram 90 daga og 2 m.kr. flokkast sem atvinnustarfsemi og er lögð sérstök áhersla á eftirlit með gististarfsemi sem kallar á rekstrarleyfi.
Skýrari yfirsýn yfir raunverulegt umfang heimagistingar tryggir rétt skattskil einstaklinga og að lögaðilar sem stunda gististarfsemi afli sér rekstrarleyfis og starfsemin fari þar með að þeim lögum sem um hana gilda. Lagt er upp með að átaksverkefnið sé til eins árs og felur það m.a. í sér að starfsmönnum í heimagistingarvakt verði fjölgað, aukin áhersla lögð á frumkvæðiseftirlit sem og að fylgst verði með notkun skráningarnúmera í markaðssetningu.
Samningurinn er í samræmi við áherslur sem koma fram í frumvarpi sem menningar- og viðskiptaráðherra hefur lagt fram á Alþingi um rekstrarleyfisskylda gististarfsemi.
Nánari upplýsingar um skráningu heimagistingar má finna hér.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.