Haukar frábiðja sér rætna umræðu

Handknattsdeild Hauka sendi í dag frá sér yfirlýsingu vegna höfuðmeiðsla Heimis Óla Heimssonar, línumanns Hauka, eftir brot Kára Kristjáns Kristjánssonar, línumanns ÍBV, í viðureign Hauka og ÍBV í undanúrslitaeinvígi félagana á dögunum. Kári Kristján fékk þriggja leikja bann í kjölfarið og hefur ÍBV beðið aganefnd HSÍ um að endurskoða þann dóm.

Yfirlýsing handknattleiksdeildar Hauka í heild sinni:

Varðandi höfuðmeiðsli Heimis Óla eftir brot leikmanns ÍBV og eftirlit og meðferð sjúkrateymis Hauka.

Vegna yfirlýsinga ÍBV í gær, aðdróttana blaðamanna og sumra sérfræðinga “Seinni Bylgjunnar” undanfarna daga, vill Handknattleiksdeild Hauka koma eftirfarandi á framfæri:

# Heimir Óli varð fyrir höfuð-hálsáverka eftir þungt högg Kára Kristjáns í leik 2 í Eyjum.

# Sjúkrateymi Hauka fylgdist með heilsu Heimis allt frá atvikinu þ.e um kvöldið/nóttina eftir leikinn, skoðun og meðferð föstudag, laugardag og sunnudag og var ákvörðun tekin eftir upphitun í leiknum á sunnudag.

# Enginn ofangreindra sérfræðinga eða blaðamenn að undanskyldum Loga Geirssyni, hafði fyrir því að leita sér upplýsinga hjá Haukum um málið þó þeir hafi eytt mestum hluta sunnudagsins undir sama þaki.

# Hið sanna er að Heimir fékk mikið högg á efri hluta hálsins og olli það honum miklum einkennum. Á föstudagsmorgni var hann ekki með nein einkenni heilahristings en mikla verki og hreyfiskerðingu upp í hálsi og hægri hluta höfuðs/kjálka. Ekki var ljóst fyrr en í upphitun að hann væri laus við einkennin eins og áður segir. Það eru því miður allt of algengt að íþróttamenn verði fyrir áverkum og förum við ekki varhluta af því frekar en önnur félög.

Í úrslitakeppninni fyrir rúmu ári síðan var Daníel Þór Ingason hvíldur í viku í eftir þungt högg á kjálkann í Vestmannaeyjum og nú síðast tekinn út úr leik 2 gegn Stjörnunni í 8 liða úrslitum í varúðarskyni.

# Við Haukamenn höfum verið þeirra gæfu aðnjótandi að hafa haft sama sjúkraþjálfara sem farið hefur fyrir okkar sjúkrateymi síðustu 22 ár og hefur alltaf tekið þær ákvarðanir í samráði við fagmenn og án afskipta okkar sem eru í forystu deildarinnar eða þjálfara á hverjum tíma. Með yfirlýsingu ÍBV og aðdróttunum ofangreindra aðila er harkalega vegið að starfsheiðri fagmanns, Heimi Óla og félaginu okkar.

# Margir núverandi leikmenn ÍBV þar með talinn umræddur Kári Kristján og þeir Gunnar Berg og Arnar Pétursson hafa leikið með Haukum og notið sérfræðiþekkingar og meðhöndlunar hjá okkur bæði sem okkar leikmenn, og sumir sem leikmenn A landsliðs Íslands og vita þeir fullvel hvernig við störfum. Undanfarin 18 ár hefur Elís Þór starfað fyrir HSÍ og verið með landsliðinu á öllum stórmótum og þar tekið þátt í mörgum erfiðum ákvörðunum um þátttöku okkar landsliðsmanna eftir slys eða veikindi.

# Við Haukamenn frábiðjum okkur þá rætnu umræðu sem farið hefur fram um þetta mál og köllum eftir þroskaðri og málefnalegri umræðu ef þarf að taka hana á annað borð. Eins og þetta hefur verið getum við ekki borið hönd yfir höfuð okkar á annan hátt en senda frá okkur þessa yfirlýsingu. Félög eiga ekki að hafa málssvara í “Seinni Bylgjunni” því það er þáttur allra félaga og þeir sem þar sitja eiga að hafa þroska til að taka umræðu og málefni á algerlega hlutlausum forsendum. Það er okkar von að handboltinn verði í fyrirrúmi í framhaldinu í okkar frábæru íþrótt.

Þorgeir Haraldsson
Formaður hkd Hauka

Nýjustu fréttir

Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  
Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði
Íbúakosning samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.