Annar býr erlendis en hinn ófundinn
Lott-2.jpg
Stóru vinningarnir gengu út í Lottó

Íslensk kona sem er búsett á Norðurlöndunum var ein með allar tölur réttar í Lottó laugardaginn 16. mars síðastliðinn og fékk fyrsta vinning því alveg óskiptan, rétt tæpar 9 skattfrjálsar milljónir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Getspá/Getraunum.

Konan sem vinnur í heilbrigðisgeiranum, kom til landsins á dögunum til að taka á móti stóra vinningnum. Hún kaupir reglulega miða með Lottó-appinu og segir það ákveðna leið til að halda tengslum við landið sitt og alveg sérstaklega gaman að gera sér ferð hingað núna af þessu tilefni í kringum páskana.

Þessi lukkunnar pamfíll bauð ungri frænku sinni með til að vitja vinningsins hjá Íslenskri getspá enda hafði sú heppna hingað til mest spilað með sömu tölurnar, en í þetta skipti bætti hún afmælisdegi frænkunnar inn í happatölurnar – sem gerði útslagið. Það var svo skemmtileg auka-tilviljun að sú sem fékk fyrsta vinning á sama afmælisdag, og sá sem fékk bónusvinninginn þennan saman laugardag.

Í lokin má geta þess að vinningshafinn sem var með allar tölur réttar síðastliðinn laugardag hefur enn ekki gefið sig fram við Íslenska getspá. Vinningsmiðinn var sömuleiðis keyptur í appinu en þar eru einungis skráðar upplýsingar um heimasíma, sem aldrei er svarað í, og netfang sem er greinilega ranglega skráð eða orðið óvirkt. Spilarar sem nota appið eru því hvattir til að kíkja í símann og gá hvort þar leynist nokkuð fyrsti vinningur, upp á tæpar 9 milljónir króna frá síðasta laugardegi.

Starfsfólk Getspár/Getrauna óskar vinningshöfunum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

Nýjustu fréttir

Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.