Smíði nýs Herjólfs kostaði rúmlega hálfum milljarði minna en upphaflega var gert ráð fyrir, þessu greindi RÚV frá.
Í janúar 2017 var gerður samningur um smíði nýs Herjólfs við pólsku skipasmíðastöðina Crist S.A. Þegar skammt var eftir af smíðinni krafðist stöðin aukagreiðslu upp á rúman milljarð króna sem var um þriðjungur af heildarverði ferjunnar. Eftir erfiðar samningaviðræður sem hafa staðið yfir frá því í febrúar féllst skipasmíðastöðin á tilboð Vegagerðarinnar. Heildarverð fyrir nýjan Herjólf er rúmlega 31 milljón evra. Ef reiknað er út frá genginu í dag eru það 4,3 milljarðar íslenskra króna og er það um hálfum milljarði minna en upphaflega var gert ráð fyrir.
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni var samningsverð fyrir ferjuna 26 milljónir evra, við það bættust tæplega 3,5 milljónir evra fyrir umsamin aukaverk – bæði í rafvæðingu og önnur smærri verk. Aukagreiðsla Vegagerðarinnar til skipasmíðastöðvarinnar var svo ein og hálf milljón evra, eða um 210 milljónir króna. Það nemur um 17 prósentum af því sem skipasmíðastöðin vildi fá aukalega en hún krafðist 1,2 milljarða króna. Auk þess samþykkti Vegagerðin að falla frá kröfu um tafabætur að andvirði tveggja milljóna evra, um 280 milljóna króna.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.