Á morgun streyma ungar knattspyrnukonur til Vestmannaeyja til að taka þátt í 30. TM Mótinu í Eyjum. Mótið í ár er það stærsta síðan mótinu var breytt í 5. flokks mót árið 2005, með 96 lið. Von er á 900 keppendum, 200 þjálfurum/farastjórum ásamt foreldrum og er því hægt að gera ráð fyrir því að hátt í 2000 manns heimsæki eyjuna í vikunni.
Í tilefni þess að þetta er 30. mótið sem við höldum þá verður boðið uppá afmælisköku í Týsheimilinu fimmtudaginn 14. júní kl. 13:00-16:00.
Í gær var opnuð í Einarsstofu sýning um sögu fótboltamótanna og í dag fór í loftið hjá ÍBV hlaðvarpinu þáttur tileinkaður TM Mótinu, þetta er eitthvað sem enginn ÍBV-ari ætti að láta framhjá sér fara.
Við hvetjum Eyjamenn til að mæta á völlinn og fylgjast með ungum knattspyrnukonum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.