Herjólfur sigldi í fyrsta skipti til Landeyjahafnar
25. júní, 2019

Herjólfur IV sigldi í fyrsta sinn í Landeyjahöfn föstudaginn 21. júní, segir í frétt á vef Vegagerðarinnar.  „Tilgangur ferðarinnar var að sigla í höfnina í fyrsta skipti og sjá hvernig það passar við hafnarmannvirkin í Landeyjahöfn,“ segir Ívar Torfason fyrsti skipstjóri Herjólfs. Ferðin gekk mjög vel enda gátu aðstæður vart verið betri. Siglingin gekk eins og áætlanir gerðu ráð fyrir og þær breytingar sem þarf að gera á hafnarmannirkjum eru smávægilegar.

Ívar segir spennandi að sigla hinu nýja skipi enda sé það skemmtilegt og öflugt. Engin leið sé að bera saman því að sigla nýja og gamla Herjólfi. „Þeir eiga í raun ekkert sameiginlegt. Það er alveg gerólík nálgun að sigla hinu nýja skipi enda allt annar stjórnbúnaður. Þú þarft í raun að henda öllu sem þú kannt og byrja upp á nýtt,” segir hann glettinn.

Áhöfn Herjólfs IV heldur áfram að æfa sig næstu daga og vikur. Til dæmis þarf að sjá hvernig er að sigla skipinu í verra veðri. „Skipið ristir minna, er léttara og því finnur maður meira fyrir vindi,“ lýsir Ívar.

Ekki er komin föst tímasetning á hvenær skipið siglir sína fyrstu ferð með farþega. Áhöfnin þarf tíma til að æfa sig og þjálfa en auk þess þarf að gera einhverjar breytingar á hafnarmannvirkjum í Vestmannaeyjum.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.