Ekki tilefni til sérstakra aðgerða
2. júlí, 2019

Á fundi bæjarráðs í dag var tekið fyrir erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem fjallað er um ósk Helgu Kristínar Kolbeins, bæjarfulltrúa, um úrskurð ráðuneytisins um hvort heimilt hafi verið að ráðast í úttekt á framkvæmdum við Fiskiðjuhúsið eftir að sú úttekt var samþykkt í bæjarráði með tveimur atkvæðum gegn einu. Snýr umrætt mál að því að þar sem ekki lág fyrir samþykki allra bæjarfulltrúanna þriggja eftir bæjarráðsfundinn, hafi bæjaryfirvöldum ekki verið heimilt að ráðast í gerð úttektarinnar fyrr en bæjarstjórn hafi fjallað um málið. Vildi Helga Kristín kanna hvort brotin hefðu verið lög og samþykktir með þessu og að ráðuneytið tæki það fyrir til skoðunar sem frumkvæðismál á grundvelli 112. gr. sveitarstjórnarlaga.

Í bréfi ráðuneytisins kemur fram að ekki er ágreiningur um að sú tillaga sem þetta mál snýr að rúmist innan fullnaðarafgreiðsluheimilda bæjarráðs. Við mat á því hvort heimilt hafi verið að hrinda umræddri ákvörðun í framkvæmd, án staðfestingar bæjarstjórnar, telur ráðuneytið það ekki í samræmi við orðalag sveitarstjórnarlaga og sambærilegs ákvæðis bæjarmálasaþykktar, þar sem mótatkvæði kom fram í bæjarráði. Hins vegar var ekki um viðamikla ákvörðun að ræða og telur ráðuneytið ekki tilefni til sérstakra aðgerða af sinni hálfu vegna þessa.
Bæjarráð vill leggja áherslu á að fara að lögum og samþykktum og tekur tillit til þeirra ábendinga sem koma fram í svari ráðuneytisins um að um ágalla hafi verið að ræða. Mikilvægt er að bæta það sem betur má fara.
Samþykkt með tveimur atkvæðum bæjarráðsmanna H- og E-lista gegn atkvæði bæjarráðsmanns D-lista.

Óheimilt að hrinda í framkvæmd úttekt
Í bókun frá bæjarráðsmanni D-lista, Hildi Sólveigu Sigurðardóttur segir að afdráttarlaus úrskurður samgöngu-og sveitarstjórnarráðuneytis liggur nú fyrir eftir frumkvæðisskoðun ráðuneytisins á stjórnsýsluháttum Vestmannaeyjabæjar vegna úttektar á framkvæmdakostnaði við Fiskiðjuna. Úrskurðurinn er áfellisdómur yfir stjórnsýslu Vestmannaeyjabæjar. Samkvæmt úrskurðinum var Vestmannaeyjabæ óheimilt að hrinda í framkvæmd úttekt á framkvæmdakostnaði við Fiskiðjuna áður en fundargerð bæjarráðs var staðfest í bæjarstjórn þar sem mótatkvæði gegn úttektinni kom fram í bæjarráði og gerðust bæjaryfirvöld þar með brotleg við 35. grein sveitarstjórnarlaga og 30. Grein bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar.
Tregða bæjarfulltrúa H- og E-lista við að viðurkenna misgjörðir sínar í umræddu máli varð til þess að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sendu kvörtun til ráðuneytis sem að endingu sendi bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar fyrrnefndan úrskurð og umvöndun þar sem því er sérstaklega beint til Vestmannaeyjabæjar að fylgja framvegis sveitarstjórnarlögum. Ánægjulegt er að heyra eftirsjá og auðmýkt í bókun meirihluta bæjarráðs en Reynsluleysi bæjarfulltrúa getur á engan hátt verið afsökun fyrir valdníðslu eða því að löglegir stjórnsýsluhættir séu vanvirtir. Framganga meirihlutans varð til þess að ekkert varð af eðlilegri lýðræðislegri umfjöllun um málið í bæjarstjórn, en bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hugðust leggja fram breytingartillögu vegna málsins. Það reyndist ekki mögulegt þar sem málið var þá komið í farveg án lagalegra heimilda.

Enginn ástæða til að hlutast meira um ágallann
Í bókun frá meirihluta segir að það sé erfitt að sjá að fulltrúi Sjálfstæðisflokksins hafi uppskorið árangur erfiðis síns með umræddri ósk um að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið meðhöndli afgreiðslu bæjaryfirvalda sem lögbrot. Þvert á móti telur ráðuneytið enga ástæðu til að hlutast frekar til um ágallann, enda um viðalítið mál að ræða sem samþykkt var hálfum mánuði síðar í bæjarstjórn.
Vakin er athygli á tvennu:
1) Ákvörðun um framkvæmd úttektar á Fiskiðjunni hefði í sjálfu sér ekki þurft að bera undir bæjarráð. Kostnaður vegna úttektarinnar var um 400 þús. kr. og rúmast vel innan heimilda framkvæmdastjóra sveitarfélagsins um aðkeypta sérfræðiaðstoð. Hafa slík kaup á utanaðkomandi sérfræðiþjónustu tíðkast í gegnum tíðina án sérstakrar ákvörðunar bæjarráðs þar um.
2) Vakin er athygli á því að einungis hálfum mánuði eftir bæjarráðsfundinn staðfesti bæjarstjórn ákvörðun bæjarráðs um að fela KPMG að framkvæma úttektina. Málið snýr því um hvort formgallar hafi verið á meðferð þess.
Það er sérstakt til þess að hugsa að fulltrúa Sjálfstæðisflokksins skuli vera svo umhugað um sveitarstjórnarlög, bæjarmálasamþykktir og álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins á máli sem varðar svo litla fjárhæð og snýr að aðkeyptri þjónustu, svo stuttu eftir að sami flokkur hafi haft að engu lög frá Alþingi og alvarlegar athugasemdir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um álagningu fasteignaskatts í tíð þeirra. Ekki hafi eingöngu verið um formgalla að ræða í því tilviki, heldur meðvitað og kerfisbundið staðið að rangri álagningu skatts og álit ráðuneytisins, sem meira að segja hótaði endurálagningu, virt að vettugi.
Njáll Ragnarssons (sign)
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir (sign)

Gekk meirihluti fram í trássi
Í seinni bókun frá bæjaráðsmanni D-lista segir  að bókun meirihluta bæjarráðs er vísað í ákvörðun meirihluta Sjálfstæðismanna um ákvörðun sína um að fella niður fasteignagjöld á eldri borgara sem var unnin í góðri samvinnu við þáverandi minnihluta og virðing sannarlega borin fyrir lýðræðislegri umfjöllun í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Í því dæmi sem hér um ræðir var ekki fyrir neinni samvinnu flokka að ræða heldur gekk meirihluti fram í trássi við samþykktir Vestmannaeyjabæjar og sveitarstjórnarlög.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
DSC 2106
8. júní 2025
13:00
Golfdagurinn í Eyjum
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju í Landakirkju
8. júní 2025
17:00
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju
Landakirkja
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.