Eins og undanfarin 100 ár eða svo hefst dagskrá nýs dags Þjóðhátíðar á léttum lögum í Dalnum.
Barnadagskráin hefst kl. 14.30 á Tjarnarsviði. Að þessu sinni eru það Ronja Ræningjadóttir og Páll Óskar sem mæta á svæðið. Að því loknu heldur svo Söngvakeppni barna áfram á Brekkusviði þar sem frá var horfið í gær.
Kl. 19.00 mætir Eyjapeyinn Leó Snær með gítarinn í Ölgarðinn og leikur þar og syngur til kl. 21.00 eða þar til kvöldvaka hefst á Brekkusviði.
Sigurvegar söngvakeppni barna hefur svo kvöldvökuna. Áður en Halldór Gunnar og félagar í Albatross taka völdin. Þeir fá til sín góða gesti. Sverrir Bergmann verður að sjálfsögðu á staðnum en þar að auki mætir Egill Ólafsson, stuðmaður með meiru. Svala Björgvins, Elísabet Ormslev, Salka Sól og Stefanía Svavars.
kl. 23.00 tekur svo Veðurguðinn Ingó við og stýrir brekkusöng þar til kveikt verður á blysunum sem eru 145 talsins að þessu sinni.
Hinir alræmdu Aldamótatónleikar með þeim taka svo við Brekkusviðinu þegar slökknað hefur í blysunum. Þar kemur landslið sveitaballsins fram. Magni, Hreimur, Gunni Óla og Einar Ágúst, Beggi í Sóldögg og Valur í Buttercup, hljómsveitinni stjórnar Vignir Snær úr Írafári.
Um svipað leiti hefja Bandmenn að leika fyrir dansi á Tjarnarsvið en þeir ásamt Eyjapeyjunum í Brimnes skipta með sé nóttinni.
Um kl. 2 taka svo stelpurnar í GRL PWR öll völd á Brekkusviði. Eyjasveitin Foreign Monkeys tekur svo við af þeim þar til Páll Óskar mætir lokar Þjóðhátíðinni þegar langt er liðið á mánudagsmorgun.
10:30 LÉTT LÖG Í DALNUM
16:00 BARNADAGSKRÁ
19:00 – 21:00 ØLGARÐURINN – HAPPY HOUR
21:00 KVÖLDVAKA
23:00 BREKKUSÖNGUR
00:00 BLYS
00:10 ALDAMÓTATÓNLEIKAR
00:30 DANSLEIKUR TJARNARSVIÐI
02:00 DANSLEIKUR BREKKUSVIÐI
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst