Nú er opið fyrir umsóknir um nýtt starf. Starf nýsköpunarstjóra Uppsjávariðnaðarins. Að sögn Tryggva Hjaltasonar, sem hefur umsjón með ráðningu er starfið unnið á vegum Þekkingarseturs Vestmannaeyja og verður staðsett í Vestmannaeyjum, en í nánu samstarfi við Félag Uppsjávariðnaðarins.
Þetta stór minnkar stærsta óvissulið frumkvöðulsins
„Í félagi Uppsjávariðnarins eru mörg af stærstu og öflugustu fyrirtækjum landsins, þar á meðal Vinnlustöðin og Ísfélagið. Fyrir liggur listi af tækifærum til nýsköpunar í Uppsjávariðnaði og í Vestmannaeyjum sem við teljum að hægt sé að vinna hratt áfram á þann stað að unnt sé að koma fyrirtæki eða verkefni á legg. Það sem gerir starfið nánast einstakt á jákvæðan hátt þegar kemur að nýsköpunarstörfum á Íslandi er að það liggja ekki bara fyrir tækifæri sem heill iðnaður hefur eyrnarmerkt sem verðmæti heldur eru fjársterk fyrirtæki sem bíða og eru tilbúin að taka áfram vel unnin verkefni og mögulega fjárfesta í þeim. Þetta stór minnkar stærsta óvissulið frumkvöðulsins sem er hvort að það sé markaður, eftirspurn og fjármagn til staðar.“
Það er Þekkingarsetur Vestmannaeyja og Félag Uppsjávariðnaðarins sem standa að stöðugildinu. Tryggvi segir að þau séu líka í samtali við Vestmannaeyjabæ um að koma að verkefninu ef það kemst kröftuglega á legg og hafa þær umræður verið jákvæðar.
Lygilegt hvað það eru mikil tækifæri til sóknar þessi misserin
Er hann er inntur eftir svörum um hverju þau vonist eftir að starfið skili segir hann að verið sé að horfa til að það skili nýjum verðmætaaukandi verkefnum, sem munu auka framleiðni hjá uppsjávariðnaði á Íslandi eða opna á tækifæri í Vestmannaeyjum og víðar.
„Það gæti þýtt ný fyrirtæki, ný störf, nýja fjárfestingu og ný hugverk. Starfið er staðsett í Vestmannaeyjum og munu því Eyjamenn, fyrirtæki hér og bæjarfélagið vera í einstakri stöðu að njóta ágóða af verkefninu, en uppsjávariðnaður út um allt land einnig.“
segir Tryggvi og bætir við:
„Þó ég segi sjálfur frá þá tel ég þetta ekki bara vera eitt besta starf sem hefur verið auglýst í Vestmannaeyjum heldur einnig eitt merkilegasta starf sem hefur verið í boði varðandi nýsköpun á Íslandi í ljósi þess hvernig utanumhald, stuðningur og bakhjarlar eru að verkefninu en einnig hvaða möguleika nýsköpunarstjórinn mun hafa til að byggja sig og verkefnin upp áfram í framhaldinu. Það er eiginlega lygilegt hvað það eru mikil tækifæri til sóknar þessi misserin.“
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst