Ljúka sveinsprófi í vélvirkjun
velvirkjar_hafnareyri_24_m
Bogi Matt, Tinna Mjöll og Birkir Freyr með eldsneytisdælurnar sínar, sveinsstykkin. Ljósmynd/vsv.is

Birkir Freyr Ólafsson og Bogi Matt Harðarson hafa lokið sveinsprófi í vélvirkjun og Tinna Mjöll Guðmundsdóttir nær sama áfanga til fulls í september. Út af hjá henni stendur hluti verklega prófsins og það klárast í Tækniskólanum í Hafnarfirði á haustdögum.

Í frétt á Vinnslustöðvarvefnum segir að öll hafi þau stundað nám í Framhaldsskóla Vestmannaeyja undanfarin ár og starfað meðfram því í Hafnareyri.

Birkir og Bogi útskrifast með stúdentspróf annan laugardag, 25. maí. Tinna lauk B-stigi í vélstjórn í desember síðastliðnum. Sveinspróf tóku þau í Borgarholtsskóla í Reykjavík og sveinsstykkin eru eldsneytisdælur.

Glímum við fjölbreytt verkefni

Birkir vinnur áfram í Hafnareyri en spáir í fjarnám í véliðnfræði í Háskólanum í Reykjavík:

„Það hefur verið mjög góð reynsla að starfa hjá Hafnareyri. Við glímum við fjölbreytt verkefni á verkstæðinu sjálfu og á verkstað, þau geta verið mjög breytileg eftir árstíma og aðstæðum hverju sinni. Kjarni máls er hve gott er að vinna hjá Hafnareyri!“

Bogi vinnur í sumar á Bílaverkstæði Harðar og Matta (Hörður er faðir hans). Hann stefnir að því að ljúka fjórða stigi í vélfræði og fara síðan í vélaverkfræði í Háskólanum í Reykjavík.

Tinna byrjar að vinna á verkstæði Össurar í Reykjavík undir lok maímánaðar og stefnir á nám í orku- og vélatækni í Háskólanum í Reykjavík.

Eru áhugasöm og eiga framtíðina fyrir sér

Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri Hafnareyrar:

„Það hefur verið virkilega gott að hafa þessa flottu krakka hjá okkur. Þau eru áhugasöm og eiga framtíðina fyrir sér. Ekki bara lífguðu þau upp á starfsandann heldur settu ný viðmið og sköpuðu staðnum frísklegan blæ.
Hjá okkur starfa miklir reynsluboltar sem leiðbeindu krökkunum og þau fengu svo sannarlega fjölbreytt verkefni til að glíma við. Það fer alltaf vel á því í hópum starfsmanna að blanda svona saman eldri og reyndum og ungum og efnilegum.“

Fleiri myndir af útskriftarnemunum má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu
Sex ferðir í Landeyjahöfn á morgun
Ríkisstyrkt áætlunarflug til Eyja framlengt út mánuðinn
ÍBV á þrjá fulltrúa sem fara á Evrópumótið með u-18
Ísak Rafnsson leggur skóna á hilluna
Útsýnisskálinn opnaður – myndband
Stefnuleysi bæjarstjórnar
Hugum að staðsetningu Féló fyrir aukna þátttöku ungmenna í samfélaginu
viðburðir
Oddvitar 2026 Samsett
14. maí 2026
17:00
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.