Samið við sjúkraþjálfara
21. maí, 2024
mynd-Steindór4
Frá undirskriftinni í dag. Ljósmynd/aðsend.

Nýr samningur milli Sjúkratrygginga og Félags sjúkraþjálfara til fimm ára var undirritaður í dag og staðfestur af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra.

„Þetta eru mikil tímamót eftir rúmlega fjögurra ára samningsleysi sem hefur bitnað á notendum þjónustunnar. Með samningnum falla niður aukagjöld sem lögð hafa verið á þjónustuþega. Samningurinn stuðlar þannig að auknum jöfnuði. Jafnframt er kveðið á um margvíslegt þróunar- og gæðastarf þjónustunnar í þágu notenda“

segir Willum Þór og greint er frá í tilkynningu.

„Það er virkilega ánægjulegt að tekist hefur að ná nýjum langtímasamningi sem tryggir aðgengi að þjónustu sjúkraþjálfara og býður upp á spennandi tækifæri til frekari framþróunar þjónustu þeirra“

segir Sigurður Helgi Helgason forstjóri Sjúkratrygginga. Undir þetta tekur Gunnlaugur Briem formaður Félags sjúkraþjálfara og bætir við

„Það er verulega ánægjulegt að samkomulag hafi náðst um fyrirkomulag þjónustunnar. Með þessu skrefi mun aðgengi að þjónustunni vera bætt verulega, ekki síst fyrir þá sem mest þurfa á að halda. Í þessu felast einnig fjölmörg tækifæri til framþróunar á komandi árum“.

Frá og með 1. júní falla niður þau aukagjöld sem lögð hafa verið á sjúklinga í samningsleysinu. Þann 1. október tekur samningurinn síðan gildi að fullu, þegar lokið er nauðsynlegum tæknilegum útfærslum og forritunarvinnu. Á samningstímanum verður unnið að útfærslu ýmissa úrbóta- og þróunarverkefna sem kveðið er á um í samningnum. Þau felast meðal annars í þarfa- og kostnaðargreiningu og mótun aðferða við forgangsröðun þjónustu. Jafnframt er með samningnum lögð áhersla á eflingu gæðastarfs m.a. með því að veita hvata til þess að sjúkraþjálfarar vinni innan svokallaðra starfsheilda sem einnig munu annast skipulagningu og eftirlit með þjónustunni.

Rúmlega 62.000 einstaklingar nýttu þjónustu sjúkraþjálfara í fyrra

Samkvæmt upplýsingum Sjúkratrygginga sóttu rúmlega 62.000 einstaklingar þjónustu sjúkraþjálfara á liðnu ári. Heimsóknirnar voru miklum mun fleiri, eða um 928.000. Árið 2022 leituðu 55.752 til sjúkraþjálfara þannig að aukningin milli ára nam um 11,3%. Það sem af er ári 2024 hafa nú 41.964 farið í sjúkraþjálfun sem er 3,9% aukning frá því sama tíma í fyrra.

Hætta að taka aukagjöld af einstaklingum

Á því árabili sem enginn samningur hefur verið í gildi við sjúkraþjálfara hafa Sjúkratryggingar tekið þátt í kostnaði við þjónustu þeirra samkvæmt sérstakri gjaldskrá. Sjúkraþjálfarar hafa á þeim tíma innheimt aukagjald við hverja komu sem hefur gjarnan numið á bilinu 1.500 – 3.000 kr. Sjúkraþjálfara munu hætta að innheimta þessi aukagjöld frá og með 1. júní.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.