Björgunarfélagið í Einarsstofu í dag

Í dag laugardag kl. 13.00 í Einarsstofu verður Afmælisblað Björgunarfélagsins kynnt áður en það fer í dreifingu um alla bæ. Sýndar verða rúllandi myndir á sýningartjaldi úr sögu félagsins, auk mynda frá Hálendisvakt björgunarsveitarinnar í síðusta mánuði og ýmsir munir og tæki, bæði gömul og ný verða til sýnis.
Blaðið spannar 100 ára sögu BV og verður það formlega afhent Björgunarfélaginu.

Sagt verður frá undirbúningi að dagskrá í Sagnheimum þar sem minnast á komu björgunar- og varðskipsins Þórs til Vestmannaeyja. Þann 26. mars 1920 verða 100 ár frá komu skipsins.

Arnór Arnórsson formaður afhendir Kára Bjarnasyni forstöðumanni Safnahúss fundargerðarbækur félagsins til varðveislu.

Fólk er hvatt til að fjölmenna og gleðjast með Björgunarfélagi Vestmannaeyja sem við eigum svo mikið að þakka.

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.