Enginn sambabolti í rokinu í dag

Foknar girðingar og brotnar flaggstangir tóku á móti þeim 200 áhorfendum sem mættu á Hásteinsvöll í dag að horfa á ÍBV taka á móti Breiðablik í PepsiMax deild karla. Fyrir leik mátti áætla að ekki yrði boðið upp á neitt sérstaklega skemmtilegan fótboltaleik, enda hífandi rok, kalt og grenjandi rigning.
Leikmenn beggja liða reyndu hvað þeir gátu til að halda boltanum niðri en það reyndist á köflum erfitt. Breiðablik komst yfir á 22. mínútu með marki frá Höskuldi Gunnlaugssyni en Gary Martin jafnaði úr vítaspyrnu 8 mínútum síðar. Urðu það lokatölur leiksins. Heilt yfir var jafnræði með liðunum en hvorugt liðanna náði að skapa sér hættuleg færi.Lokaumferðin verður leikin næsta laugardag og þá mætir ÍBV Stjörnunni í Garðabænum. Fyrir umferðina er Gary Martin næstmarkahæsti leikmaður mótsins.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Vinnslustöðin styrkir stöðu sína í Portúgal
Herjólfur aftur í fulla áætlun á morgun
Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.