Á áætlun hjá VSV
3. júlí, 2024
Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Í haust hófust framkvæmdir við nýtt tveggja hæða steinhús á Vinnslustöðvarreitnum. Alls verður nýbyggingin um 5.600 fermetrar, sem í verður saltfiskvinnsla á neðri hæð og innvigtun uppsjávarafla á efri hæð.

„Framkvæmdin er ennþá á áætlun samkvæmt Eyktarmönnum. Við erum að stefna á að geta byrjað að nota neðri hæðina í janúar fyrir saltfiskinn. Í dag er platan á fyrstu hæðinni á lokametrunum í þrónni og í portinu er að verða klárt í að byrja á plötunni á 1 hæð.

Þeir vinda sér svo í að steypa plötuna á annari hæð og hækka veggina að austan um leið og platan á fyrstu hæð verður klár. Þar sem við erum að notast við útveggina í þrónni er uppbyggingin ekki svo seinleg. Mesta vinnan hefur verið að leggja lagnasúpu undir plötuna í grunninn til að uppfylla allar kröfur um hreinsun og frádælingu.“ segir Willum Andersen, tæknilegur rekstrarstjóri Vinnslustöðvarinnar í samtali við vefsíðu Vinnslustöðvarinnar.

Halldór B. Halldórsson gerði sér ferð um framkvæmdasvæðið og gerir hann upp ferð sína í tæplega þriggja mínútna löngu myndbandi sem sjá má hér að ofan. Hér að neðan er myndasyrpa Óskars Péturs Friðrikssonar frá framkvæmdunum.

https://eyjar.net/aframhaldandi-uppbygging-hja-vsv/

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.