Fiskistofa fer á flug

Eftirlitsmenn Fiskistofu munu fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits í júlí og verða allar upptökur skoðaðar vel og fiskur sem fer fyrir borð tegundargreindur, segir í færslu á vef Fiskistofu.

Sjómenn og útgerðaraðilar eru beðnir um að kynna sér vel reglur og lög um stjórn fiskveiða.

Nokkur atriði sem Fiskistofa nefnir sem vert er að huga að:

  • Óhætt er að sleppa hlýra og ef hann er lífvænlegur.

  • Skylt er sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg.

  • Heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu.

  • Sleppa á grásleppu sem fæst í  þorskfiskanet.

  • Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.

  • Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu.

  • Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.

  • Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.

 

Nýjustu fréttir

Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Vel heppnað námskeið í Hvíta húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.