Ekki tilefni til frekari athafna í málum Kidda og Donna
Erlingur Richardsson og Kristinn Guðmundsson

Aganefnd HSÍ úrskurðaði í dag um fjögur mál þar af voru tvö mál tengd ÍBV vegna ummæla sem Kristján Örn Kristjánsson, leikmaður og Kristinn Guðmundsson, þjálfari ÍBV viðhöfðu um dómgæslu og dómaramál í viðtölum við fjölmiðla eftir að leik ÍBV og Aftureldingar í mfl. karla 15. október.

Úrskurður aganefndar 23. október 2019

1. Aganefnd hefur borist erindi frá framkvæmdastjóra HSÍ vegna ummæla sem Kristinn Guðmundsson, þjálfari ÍBV viðhafði um dómgæslu og dómaramál í viðtölum við fjölmiðla (visir.is og mbl.is) eftir að leik ÍBV og Aftureldingar í mfl. karla 15. október sl. lauk. Í samræmi við 18. gr. reglugerðar HSÍ um agamál var ÍBV gefinn kostur á að skila inn skriflegri greinargerð. Greinargerð hefur borist frá ÍBV. Samkvæmt 18. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er stjórn eða framkvæmdastjóra HSÍ heimilt að vísa til aganefndar atvikum sem skaðað geta ímynd handknattleiksíþróttarinnar. Um getur verið að ræða hvers kyns ósæmilega framkomu innan eða utan leiks eða á annan hátt opinberlega. Aganefnd hefur farið yfir umrædd ummæli. Aganefnd tekur undir að þjálfarinn hefði í viðtalinu mátt viðhafa varfærnislegra orðalag og að téð ummæli séu honum ekki til framdráttar. Með vísan til fyrri fordæma er það hins vegar mat nefndarinnar að gera verður í þessum efnum, greinarmun á, annars vegar ummælum sem fela í sér almenna gagnrýni á störf dómara og hins vegar alvarlegum aðdróttunum í garð einstakra aðila, ásakanir um óheiðarleika eða aðra viðlíka háttsemi. Telur nefndin að umrædd ummæli feli fyrst og fremst í sér gagnrýni þjálfarans sem byggja á upplifun hans og hann getur að einhverju marki fært rök fyrir. Innan tjáningarfrelsis þjálfarans rúmast, að mati nefndarinnar, réttur hans til að segja, innan skynsamlegra marka, skoðun sína á frammistöðu dómara, leikmanna og skipulagi HSÍ. Með vísan til alls framangreinds er niðurstaða nefndarinnar að ummælin feli ekki í sér ósæmilega framkomu sem skaðað getur ímynd handknattleiksíþróttarinnar. Að mati nefndarinnar er ekki tilefni til að láta aðila sæta viðurlögum í máli þessu en áréttar þó mikilvægi þess að þjálfarar líkt og leikmenn liða sýni í orðum og í verki þá almennu háttvísi og framkomu sem samboðin er handknattleiksíþróttinni.

2. Aganefnd hefur borist erindi frá framkvæmdastjóra HSÍ vegna ummæla sem Kristján Örn Kristjánsson, leikmaður ÍBV viðhafði um dómgæslu og dómaramál í viðtölum við fjölmiðla (ruv.is) eftir að leik ÍBV og Aftureldingar í mfl. karla 15. október sl. lauk. Í samræmi við 18. gr. reglugerðar HSÍ um agamál var ÍBV gefinn kostur á að skila inn skriflegri greinargerð. Greinargerð hefur borist frá ÍBV. Samkvæmt 18. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er stjórn eða framkvæmdastjóra HSÍ heimilt að vísa til aganefndar atvikum sem skaðað geta ímynd handknattleiksíþróttarinnar. Um getur verið að ræða hvers kyns ósæmilega framkomu innan eða utan leiks eða á annan hátt opinberlega. Aganefnd hefur farið yfir umrædd ummæli og telur þau með öllu óskiljanleg bæði samkvæmt orðanna hljóðan og almennri málvenju. Verða þau því ein og sér ekki talin nægjanleg til að aðila verði gert að sæta viðurlögum í máli þessu. Með vísan til alls framangreinds er niðurstaða nefndarinnar að ummælin feli ekki í sér ósæmilega framkomu sem skaðað getur ímynd handknattleiksíþróttarinnar. Að mati nefndarinnar er ekki tilefni til frekari athafna í málinu.

tekið af hsi.is

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.