Sverrir nýr formaður ÍSF
21. nóvember, 2024
IMG 5989
Sverrir Haraldsson sýnir hér erlendum gestum saltfiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar. Ljósmynd/vsv.is

Á dögunum var haldinn aðalfundur Íslenskra saltfiskframleiðenda (ÍSF). Félagið – sem stofnað var árið 2008 – er vettvangur framleiðenda saltaðra fiskafurða, til að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum og stuðla að rannsóknum og þróun í greininni. Fyrirtækjum í söltun sjávarafurða hefur fækkað mjög á undanförnum árum en engu að síður er enn til staðar öflug framleiðsla og útflutningur saltfiskafurða frá Íslandi.

Á fundinum var kjörin ný stjórn þar sem Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri botnfisks hjá Vinnslustöðinni verður formaður. Með Sverri í stjórn eru Jóhann Helgason frá Vísi í Grindavík sem er varaformaður, Gunnlaugur Eiríksson frá Þorbirni í Grindavík er gjaldkeri, meðstjórnendur eru Arkadiusz Lakomski frá KG Fiskverkun í Rifi, Ágúst Már Gunnlaugsson frá GPG Seafood á Húsavík, Mjöll Guðjónsdóttir frá Soffaníasi Cecilssyni í Grundarfirði og Níels A. Guðmundsson frá Iceland Seafood. Sigurjón Arason frá Matís er stjórninni til ráðgjafar, eins og hann hefur verið frá upphafi félagsins.

ISF 20241107 095038
Frá aðalfundi ÍSF.

Saltfiskafurðir verði áfram mikilvægar í útflutningi Íslendinga

Sverrir segir í samtali við Vinnslustöðvar-vefinn að félagið gegni mikilvægu hlutverki, þótt starfsemi þess hafi ekki alltaf verið fyrirferðarmikil.

„Upphaf félagsins má rekja til þess að til stóð að banna innflutning til Evrópusambandsins, á söltuðum fiskafurðum sem innihéldu viðbætt fosfat, án þess að gild rök væru fyrir því. Fosfat er mikilvægt þráavarnarefni í sumum saltfiskafurðum, fyrir Spánar- og Ítalíumarkað. Þetta hefði falið í sér mismunum gagnvart öðrum vörum og skemmt mjög fyrir stórum hluta iðnaðarins. Með samstilltu átaki tókst þá að hnekkja þeim ákvörðunum og gegndi ÍSF þar lykilhlutverki sem samstarfsvettvangur framleiðenda. Félagið er nú, eins og þá, tilbúið til að takast á við sameiginleg hagsmunamál með sama hætti. Slík mál eru stöðugt í vinnslu og skoðun hjá félaginu.

Einnig er það nú hlutverk félagsins að stuðla að framþróun í þágu saltfiskiðnaðarins. Í því felst að koma að rannsóknum og þróun en aðalsamstarfsaðili okkar þar er Matís sem við vinnum mjög náið með. Nú er verið að vinna að áhugaverðum verkefnum sem kynnt voru á nýafstöðnum aðalfundi ÍSF.

Annað sem má nefna eru kynningarmál en ÍSF hefur unnið mikið með Íslandsstofu í þeim efnum. Einnig höfum við átt gott samstarf við veitingamenn og nefna má sérstaklega Menntaskólann í Kópavogi sem býður upp á öflugt nám í matvælagreinum.

Saltfiskframleiðsla hefur vissulega dregist saman og framleiðendum hefur fækkað mikið en ég trúi því að saltfiskafurðir verði áfram mikilvægar í útflutningi Íslendinga um ókomna tíð. Það eru fáir, ef nokkrir, markaðir sem meta uppruna vöru jafn mikils og saltfiskmarkaðir S – Evrópu. Þar eru afurðir frá Íslandi metnar hæst af öllu því sem í boði er! Slíkir markaðir eru okkur afar verðmætir, til langs tíma litið,“ segir Sverrir.

Þróa skilvirkar aðferðir til að greina og sannreyna uppruna saltfisks

Einn helsti samstarfsaðilili ÍSF hefur verið Matís sem unnið hefur fjölmörg rannsóknaverkefni í samstarfi við félagið. Á fundinum voru tvö erindi sem bæði komu frá Matís og snerust þau um að kynna verkefni sem unnin hafa verið í samstarfi við ÍSF.

Davíð Gíslason, verkefnastjóri hjá Matís fór yfir stöðu verkefnisins „Saltfisksvindl – eftirlit og upprunavottun fyrir íslenskar saltfiskafurðir“. Verkefnið er unnið af Matís, í samstarfi við saltfiskframleiðendur. Markmið verkefnisins er að þróa skilvirkar aðferðir til að greina og sannreyna uppruna saltfisks. Nú þegar hefur verkefnið leitt í ljós áhugaverðar staðreyndir í þessum efnum. Verkefnið er enn í vinnslu og endanlegra niðurstaðna er að vænta fljótlega.

Ímynd saltfisks á Íslandi skiptir miklu máli

Kolbrún Sveinsdóttir flutti því næst erindi sitt sem nefndist „Er saltfiskur í boði“. Kolbrún er verkefnastjóri hjá Matís og gestaprófessor við matvæla- og næringarfræðideild heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands. Hún hefur í starfi sínu hjá Matís stýrt saltfisktengdum verkefnum Matís sem hún sagði frá í erindi sínu.

Matís gerði árið 2019, könnun á neyslu viðhorfum gagnvart saltfiski og voru niðurstöður þeirrar könnunar afar áhugaverðar. Ímynd saltfisks á Íslandi skiptir miklu máli fyrir útflutning og markaðsstarf erlendis. Saltfiskur er sögu- og menningarleg arfleifð sem Íslendingar eiga að vera stoltir af.

Umfangsmikið verkefni í vinnslu

Einnig hefur Matís unnið að verkefninu „Saltfiskkræsingar“ síðan árið 2022 en það er hluti samstarfsverkefnis Íslendinga, Norðmanna og Færeyinga undir nafninu „Trendy Cod“. Markmið verkefnisins Saltfiskkræsingar er að efla tengsl innan virðiskeðjunnar, auka þekkingu, virðingu og neyslu á saltfiski auk þess að þróa nýja eða bætta tilbúna rétti sem byggja á hefðbundum saltfiski. Verkefnið er umfangsmikið og hefur verið unnið í samstarfi Matís, Gríms Kokks, Menntaskólans í Kópavogi, Íslenskra saltfiskframleiðenda, Vinnslustöðvarinnar, Klúbbs matreiðslumeistara og Íslandsstofu. Verkefnið er í enn í vinnslu og verið er að undirbúa næstu skref.

Fleiri myndir má sjá hér.

ISF3 20241107 091320
Kolbrún Sveinsdóttir flutti erindið „Er saltfiskur í boði“
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst