ÍBV tapaði í dag naumlega gegn Stjörnunni í Olís deild kvenna. Leikið var í Vestmannaeyjum. Lið gestanna leiddi í leikhléi 11-13. Munurinn jókst svo í síðari hálfleik og munaði mest 7 mörkum. ÍBV náði svo að minnka muninn þegar líða tók á hálfleikinn og munaði einungis einu marki þegar lokaflautið kom. Lokatölur 22-23.
Hjá ÍBV var Sunna Jónsdóttir markahæst með 5 mörk, Agnes Lilja Styrmisdóttir og Birna Berg Haraldsdóttir skoruðu 4 hvor og Alexandra Ósk Viktorsdóttir gerði 3 mörk. Bernódía Sif Sigurðardóttir varði 13 bolta í markinu. Þegar 11 umferðum er lokið í deildinni er ÍBV í næstneðsta sæti með 6 stig. Stjarnan lyfti sér upp í fimmta sæti með 8 stig.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.