Hluti af sýningu Sigurgeirs Jónassonar í Einarsstofu klukkan 17.00 í dag eru myndir af listaverkum í bænum sem hann tók sérstaklega fyrir Helgu Hallbergsdóttur, fyrrum safnstjóra Sagnheima.
Tengjast myndirnar lokaverkefni hennar í námi og nafnið, Hraun og menn vísar til þess að árið 1999 komu hingað 24 norrænir listamenn og dvöldu hér hluta úr sumri og unnu að verkum sínum. Má ennþá sjá nokkur þeirra verka sem þeir skildu eftir. Sigugeir sýnir myndirnar og Helga segir frá þeim. Verður fróðlegt og gaman að kynnast sögu listaverkanna og fá að vita eitthvað um höfunda.
Um Hraun menn segir í Menningarblaði Morgunblaðsins:
Hraun og menn er samstarfsverkefni Þróunarfélags Vestmannaeyja, Vestmannaeyjabæjar, einkaaðila og myndlistarmanna á Norðurlöndunum. Sem styrktaraðilar að verkefninu koma einnig Nordisk kulturfond, Nordens Institut i Grønland og menntamálaráðuneytið. Fyrir tveimur árum var hliðstætt verkefni sett á laggirnar á Grænlandi, undir yfirskriftinni Steinar og menn, og er fyrirmyndin að hluta sótt þangað.
“Hugmyndin er að listamennirnir vinni verk sín í nánum tengslum við náttúru og umhverfi Eyjanna. Er og von aðstandenda verkefnisins að það geti orðið listamönnunum efni og hvati til nýrrar hugsunar og til eflingar nýrra hugmynda, ekki síður en að opna hugi jafnt listamannanna og almennings gagnvart myndlist og myndsköpun. Með það í huga munu listamennirnir vinna verk sín fyrir opnum tjöldum og mun almenningi gefast kostur á að fylgjast með þróun og hugmyndum listamannanna um leið og verkin verða til,” segir í fréttatilkynningu.
Þegar á líður verkefnið verður svo efnt til ráðstefnu, þar sem reynt verður að svara áleitnum spurningum varðandi myndlist, svo sem: Hvernig vaknar áhugi ungs fólks á myndlist? Hver er staða myndlistar og menningar í upplýsingasamfélagi nútímans?
Listamennirnir sem taka þátt í verkefninu eru: Páll Guðmundsson, Örn Þorsteinsson, Halldór Ásgeirsson og Hulda Hákon frá Íslandi, Niels Christian Frandsen, Olav Manske, Poul Bækhøj, Lise Ring, Liné Ringtved Thordarson, Sys Svinding og Claus Ørntoft frá Danmörku, Buuti Pedersen, Marianne Jessen og Nuka Lyberth frá Grænlandi, Kicki Stenström og Lone Larsen frá Svíþjóð, Helge Røed og Marit Benthe Norheim frá Noregi, Ellika Sjöstrand frá Álandseyjum og Minna Tervo, Barbara Tieaho og Bobi Richford Ekholm frá Finnlandi.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.