Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði í heimahöfn í Vestmannaeyjum í gær að aflokinni afar stuttri veiðiferð. Heimasíða Síldarvinnslunnar segir frá og ræðir við Egil Guðna Guðnason skipstjóra um veiðiferðina.
„Þessi túr var 38 tímar höfn í höfn og við vorum um 30 tíma að veiðum. Það var verið á Víkinni allan tímann og það gekk semsagt afar vel að fá í skipið. Aflinn var blandaður; þorskur, ýsa og ufsi. Þorskurinn var um 50%. Aflabrögðin gerast ekki mikið betri og við hefðum svo sem getað verið fljótari að fylla skipið. Auðvitað er álag á mönnum þegar svona fiskast og menn gefa sér engan tíma til að fylgjast með júróvisjón en menn eru líka hressir að loknum túr eins og þessum og ekki skemmdi veðrið því það var einstaklega fallegt,” sagði Egill Guðni. Vestmannaey heldur til veiða á ný í kvöld, segir í fréttinni.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst