Mælavæðing Vestmannaeyjum

Settir verða upp svokallaðir snjallmælar en þeir eru með fjaraflestrarbúnaði og þegar búið er að setja upp slíka mæla og þeir komnir í samband við upplýsingakerfi HS Veitna hættir reikningagerð að byggja á áætlunum og aflestri, viðskiptavinir greiða fyrir raun notkun hverju sinni.

Áætlað er að mælaskiptin og uppsetning upplýsingakerfisins fari fram á næstu árum og verði að fullu lokið í árslok 2022. Nú þegar er búið að skipta um 64% rafmagnsmæla. Bent er á að þó svo að viðskiptavinir séu komnir með snjallmæli er ekki sjálfgefið að viðskiptavinir fari að greiða strax fyrir raun notkun því mögulegt er að uppsetning upplýsingarkerfis sé ekki tilbúin.

Mælaskiptin eru unnin af starfsmönnum HS Veitna fyrir utan venjulegan vinnutíma.
Mælaskiptin hjá verktaka eru unnin af starfsmönnum Geisla og munu í flestum tilfellum fara fram á dagvinnutíma.
Verktakar og starfsmenn HS Veitna sem vinna við mælaskiptin bera vinnustaðaskírteini frá HS Veitum.

Komið verður á staðinn, skipt um mæli sé það mögulegt eða tími festur til mælaskiptana.
Það er von okkar að viðskiptavinir taki vel á móti mælasetjurum og að aðgengi að mælum verði gott.

tekið af vef HS veitna

Nýjustu fréttir

Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.