Nova Fest á Vöruhúsinu sló í gegn
Það var margt um manninn á Nova Fest í garði Vöruhússins.

Nova Fest á Vöruhúsinu fór fram um Þjóðhátíðina á nýjum stað og er óhætt að segja að hátíðin hafi slegið í gegn hjá gestum. Aðsókn var stöðug alla helgina og gekk vel að halda utan um viðburðinn á svæðinu. Í fyrsta sinn var boðið upp á Nova PoppÖpp í samblandi við tónleikadagskrá NovaFest. Þar komu saman fyrirtæki úr ýmsum áttum til að bæta enn frekar á upplifun gesta,“ segir  Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson, markaðsstjóri Nova.

„Það skiptir okkur öllu máli að skapa eftirminnilega og jákvæða upplifun, bæði fyrir gesti og heimafólk í Eyjum. Erum við virkilega ánægð með útkomuna og samstarfið með Vöruhúsinu. Það er stór partur af okkar nálgun að gera hlutina öðruvísi og því fannst okkur extra skemmtilegt að geta kynnt splunkunýjan stað, stemningu, og umgjörð í ár. Nova PoppÖpp stimplaði sig svo vel inn í ár og mun klárlega snúa aftur að ári. Við viljum bara þakka öllum samstarfsaðilum fyrir samstarfið og við hlökkum til að gera enn betur á næsta ári,” segir Sigurbjörn. Ari.

 

Aðsendar myndir.

 

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.