Þrír kórar takast á við Requiem á allraheilagramessu
Kári Fúsa og Snorri Þór, gullbarkar með Gull. Myndir Andri Hugo.

Það var vel mætt á Kjötsúpukvöld Karlakórs Vestmannaeyja í Kiwanis húsinu í síðustu viku. Þar var  vetrarstarf kórsins kynnt um leið og reynt var að lokka inn fleiri karla í þennan  skemmtilegasta félagsskap sem hugsast getur.

Súpan smakkaðist hið besta og þarna var að sjá nokkur ný andlit sem vonandi eiga eftir að láta til sín taka i því sem framundan er. „Þar með er vetrardagskráin formlega hafin og mun okkar maður, Matthías Harðarson, nýráðinn dómorganisti halda á sprotanum í vetur eins og hann hefur gert undanfarin ár,“ segir Andri Hugo Runólfsson félagi í kórnum.

„Framundan eru stífar æfingar því þann 2. nóvember sameinast allir kórar í Vestmannaeyjum, Karlakórinn, Kvennakór Vestmannaeyja og Kór Landakirkju og flytja verkið Requiem eftir Gabriel Fauré á allraheilagramessu í Landakirkju, undir stjórn Matthíasar. Metnaðarfullt og skemmtilegt verkefni sem gaman verður að takast á við,“ segir Andri.

Karlakór Vestmannaeyjum var endurvakinn árið 2015 og hefur starfað óslitið síðan.

Steini pípari og Jón sálfræðingur tilbúnir í slaginn í vetur.

 

Ari Hafberg Friðfinnsson og Ingólfur Jóhannesson.

 

Kjötsúpa upp á tíu.

 

Ryðgaðar raddir ræstar eftir hvíld í sumar.

Nýjustu fréttir

Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.