Segir ASÍ nota uppsagnirnar í pólitískum tilgangi
Arnar Hjaltalin Opf 22
Arnar Hjaltalín, formaður Drífanda. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Arnar Hjaltalín, formaður Drífanda – stéttarfélags gagnrýnir miðstjórn ASÍ fyrir að nýta uppsagnir í fiskvinnslu í pólitískum tilgangi. „Það heyrðist ekkert frá ASÍ fyrr en þessi ályktun kemur, og það er aðeins verið að reyna hvítþvo ríkisstjórnina með ályktuninni. Við fréttum bara af henni af afspurn en enginn hefur haft samband við okkur frá ASÍ, hvorki tölvupóstur né símtal,“ segir hann.

Í nýlegri ályktun ASÍ var fjallað um stöðuna í sjávarútvegi, en Arnar segir augljóst að þar hafi m.a. verið vísað til uppsagnanna í Eyjum.

Stór biti fyrir lítið samfélag

Um 50 manns misstu vinnuna í uppsögnunum, þar af voru 40% yfir fimmtugt og fimm yfir 67 ára aldri. „Þetta eru 3,5% af félagsmönnum Drífanda en mun hærra hlutfall af félagsgjaldatekjum. Það sýnir að fólkið var að lyfta sér langt yfir meðallaun með mikilli vinnu,“ segir Arnar.

Þrátt fyrir að hluti fólks hafi fengið störf í öðrum deildum fyrirtækisins eða horft til annarra tækifæra, telur hann ljóst að 50 störf séu horfin fyrir fullt og allt. „Þetta er mikið högg fyrir vinnumarkaðinn og samfélagið hér,“ bætir hann við.

Ójöfnuður í aðgangi að auðlindum

Í ályktun ASÍ var bent á að sjávarauðlindir væru sameign þjóðarinnar. Arnar tekur undir það, en segir að sami hugsunarháttur gildi ekki um aðrar auðlindir. „Við á landsbyggðinni greiðum margfalt meira fyrir rafmagn, heitt vatn og jafnvel drykkjarvatn en fólk á suðvesturhorninu. Þar heyrist ekkert frá miðstjórn ASÍ, enda njóta margir þeirra þessara auðlinda sjálfir án þess að við fáum hlutdeild í þeim með sama lága verðinu og afhendingaröryggi eins og fólk á suðvesturhorninu nýtur.

Þakkar Höllu fyrir stuðning

Arnar segir aðspurður að einungis Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hafi boðið fram aðstoð og heimsótt félagið. „Hún á heiður skilið fyrir það,“ segir hann.

Formaðurinn leggur áherslu á að uppsagnirnar eigi ekki að nota til að styrkja pólitíska baráttu eða búa til sundrung milli hópa. „Útgerðin er hvorki vinur okkar né óvinur. Stærstu ógnirnar við samfélagið liggja í kaupum á útgerðum úr byggðarlaginu, óréttmætri skiptingu auðlinda og sértækri skattpíningu á landsbyggðina,“ segir hann.

Einn þingmaður haft samband

Spurður um viðbrögð þingmanna segir Arnar að Víðir Reynisson sé eini þingmaðurinn sem hafi sýnt málefnum Eyjanna og þessum uppsögnum einhvern áhuga.

„Við áttum gott samtal með honum og var farið yfir víðan völl. Ekki bara uppsagnirnar og málefni tengd þeim. Farið var yfir kostnað fólks á landsbyggðinni vegna heilbrigðisþjónustu og hvað hallar á okkur miðað við þá sem „þurfa bara að hlaupa yfir götuna til að sækja hana“.

Við fórum yfir auðlindamálin og rörsýnina sem ríkir í þeim málum. Þ.e. það er eins og það séu  bara tvær auðlindir á Íslandi, fiskur í sjó og fiskur í sjókvíum. Hvað sumir landsmenn hafa greiðan og ódýran aðgang að miklum auðlindum en við og aðrir víða á landsbyggðinni njótum þeirra ekki. Þetta var í heildina mjög góður fundur og gott að vita að við eigum þingmann sem sýnir málefnum okkar Eyjamanna áhuga,“ segir Arnar að lokum.

Nýjustu fréttir

Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.