„Stöðugleiki er lykillinn“
VSV Japan styrkir tengsl við viðskiptavini og leggur áherslu á stöðugt framboð íslenskra sjávarafurða á Asíumörkuðum
9. nóvember, 2025
Qingdao Hopmynd
Hiroki (fyrstur frá vinstri) og Yohei Kitayama (annar frá hægri) ásamt starfsmönnum samstarfsaðila VSV. Mynd/vsv.is

Alþjóðlega sjávarútvegssýningin í Qingdao var haldin í 28. sinn í haust og dregur að sér fyrirtæki og gesti alls staðar að úr heiminum. Í viðtali á vef Vinnslustöðvarinnar segir Yohei Kitayama, sölustjóri VSV Japan, sýninguna vera einn mikilvægasta vettvang í heimi fyrir viðskipti með sjávarafurðir og að þátttaka VSV skipti máli til að fylgjast með þróun markaðarins í Asíu. 

Mikilvægur vettvangur fyrir alþjóðlegan sjávarútveg

„Þetta er stærsta sjávarútvegssýningin í Asíu, að umfangi og mikilvægið nánast sambærilegt við sýninguna í Barcelona,“ segir Kitayama.

„Kína er ekki lengur aðeins stærsta áframvinnsla heims, heldur einnig eitt stærsta landið er kemur að neyslu. Það sem gerist í Kína hefur bein áhrif á sjávarútveg um heim allan. Þess vegna finnst mér mikilvægt að við séum á svæðinu, að við finnum taktinn og spennuna í markaðnum af eigin raun.“

Skortur á hráefni og hækkandi verð

Þegar hann er spurður um hvað hafi staðið upp úr á sýningunni í ár, segir Kitayama að flestir séu sammála um að framboð á sjávarafurðum standist ekki eftirspurnina.

„Það er orðið mjög augljóst að framboð á nær öllum tegundum sjávarafurða nær ekki að mæta eftirspurn. Við sjáum mikla hækkun á verði helstu tegunda eins og þorsks og makríls,“ segir hann. „Við höfum áhyggjur af því að hækkunin sé orðin það brött að markaðurinn ráði illa við hana.“

Vinnslustöðin hefur, að sögn Kitayama, sterka stöðu sem traustur framleiðandi á alþjóðlegum vettvangi.

„Sem eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Íslands eru væntingar markaðarins til stöðugrar vöru- og hráefnisframleiðslu miklar. VSV leggur áherslu á heilbrigða virðiskeðju og langtímasamstarf við viðskiptavini, og ég tel að fyrirtækið njóti trausts sem áreiðanlegur birgi.“

Sterk staða í Asíu

Álit Kitayama er að íslenskar sjávarafurðir séu eftirsóttar í Asíu vegna stöðugleika í gæðum, magni og verði. „Stöðugt framboð, jöfn gæði og sanngjarnt verð – þetta eru helstu atriðin sem gera íslenskar sjávarafurðir aðlaðandi fyrir kaupendur í Asíu,“ segir hann og bætir við að VSV hafi þegar náð sterkri stöðu á markaðnum.

„Við höfum trausta viðskiptavini sem vilja starfa með okkur til lengri tíma. Reyndar er staðan nú sú að eftirspurnin er meiri en við getum fullnægt með núverandi framleiðslugetu,“ segir hann. Samskiptin milli VSV Japan og höfuðstöðvanna á Íslandi eru mikil og byggja á gagnkvæmu trausti.

„Við reynum að taka þátt í helstu sjávarútvegssýningum í Asíu á hverju ári. Fulltrúar okkar frá Íslandi leggja mikið upp úr því að hitta viðskiptavini okkar á staðnum, og á móti heimsækja margir viðskiptavinir okkar Ísland á vertíðinni til að kynnast starfseminni betur. VSV Japan sér um að samræma þessar heimsóknir í báðar áttir.“

Aukinn þrýstingur á markaðnum og viðkvæm staða loðnunnar

Þegar talið berst að stöðunni á Asíumarkaði og framboðsáskorunum nefnir Kitayama að það sem komi skýrast fram í samtölum við kaupendur sé sama áhyggjuefnið á öllum vígstöðvum: skortur á stöðugleika. Og hvergi sé það jafn áþreifanlegt og í umræðu um loðnu.

Hann er spurður út í áhrif óstöðugra loðnuveiða undanfarin ár og svarar því til að framboðið hafi einfaldlega ekki náð að halda í við eftirspurn. „Við höfum ekki náð að byggja upp birgðir til að tryggja stöðugt framboð inn á markaðinn og það hefur sett allt kerfið undir þrýsting,“ segir hann.

Afleiðingarnar hafi verið umtalsverðar verðhækkanir, bæði á hrygnu og hæng, og þær hækkanir séu farnar að birtast í veikara flæði inn á neytendamarkað. Þegar varan verði dýrari og aðgengi minna, dragist neysla saman – og það sé þróun sem geti reynst hættuleg ef hún nær að festast í sessi.

„Við höfum áhyggjur af því að áframvinnsluaðilum fækki ef staðan helst svona. Það er raunveruleg hætta á að varan detti einfaldlega úr hillum verslana ef neytendur og áframvinnsluaðilar missa tengingu við hana. Það væri mikið áfall fyrir alla virðiskeðjuna,“ segir hann.

Kitayama leggur áherslu á að lykillinn að lausninni sé ekki flókinn, heldur grundvallaratriði í allri sjávarútvegsstarfsemi: fyrirsjáanleiki. „Við þurfum að geta treyst á sjálfbærar og stöðugar loðnuveiðar. Þetta snýst um að geta staðið við skuldbindingar okkar og tryggt viðskiptavinum hráefni til áframvinnslu.“

Sameiginleg ábyrgð á heilbrigðum markaði

Að lokum segir Kitayama að meginlærdómur sýningarinnar í ár sé sá að sjávarútvegurinn standi frammi fyrir áskorunum í framboði. „Það er orðið ljóst að við munum eiga í erfiðleikum með að fullnægja þeirri eftirspurn sem er á markaðnum,“ segir hann.

„Verð hefur rokið upp á flestum tegundum vegna hráefnisskorts, og því munu bæði birgjar og kaupendur finna fyrir þrýstingi. Við þurfum að vinna saman til að forðast að „drepa markaðinn“ með of miklum hækkunum, því við viljum viðhalda heilbrigðum markaði til lengri tíma fyrir báða aðila.“

Hér má sjá fleiri myndir frá sýningunni.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF 12 Tbl Forsidan
12. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.