Eyjakonur með stórsigur á KA/Þór
Úr leik ÍBV gegn Fram fyrr í vetur. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

Kvennalið ÍBV í handbolta tók á móti KA/Þór í áttundu umferð Olís deildar kvenna í Eyjum í dag. Leiknum lauk með stórsigri heimakvenna, 37-24. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Eyjakonur náðu þriggja marka forystu og var staðan 18-15 fyrir ÍBV í hálfleik.

Eyjakonur settu í annan gír í seinni hálfleik og áttu KA/Þór engin svör við varnarleik ÍBV. Eyjakonur unnu að lokum nokkuð þægilegan 13 marka sigur. Lokatölur 37-24. Eftir átta umferðir eru Eyjakonur í öðru til þriðja sæti deildarinnar ásamt ÍR með 12 stig. KA/Þór er áfram í fjórða sæti með 9 stig.

Sandra Erlingsdóttir átti stórleik og var markahæst í leiknum með 10 mörk. Þá lék Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir sinn fyrsta leik fyrir ÍBV í langan tíma. Hún kom inn á þegar níu mínútur voru til leiksloka og hafði strax áhrif. Hún vann vítakast fyrir ÍBV, skoraði eitt mark og átti eina stoðsendingu.

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 10 mörk, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 5, Amelía Dís Einarsdóttir 5, Agnes Lilja Styrmisdóttir 4, Ásdís Halla Hjarðar 4, Birna Berg Haraldsdóttir 4, Britney Cots 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 1, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 1, Klara Káradóttir.

Næsti leikur ÍBV er útileikur gegn Stjörnunni laugardaginn 15. nóvember.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.