Revíuhefðin og Mzungu heilluðu gesti
Zindri, Hólmfríður og Una Margrét. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓG

Tveir rithöfundar buðu gestum á Bókasafninu upp á áhugaverðar bókakynningar sl. laugardag, þar sem bæði menningarsaga og nýskáldaðar frásagnir fengu að njóta sín.

Silfuröld revíunnar – ný bók Unu Margrétar Jónsdóttur

Una Margrét Jónsdóttir kynnti bókina Silfuröld revíunnar, þar sem hún rekur sögu íslensku revíunnar á tímabilinu 1957–2015. Í verkinu fjallar hún einnig um kabaretta, áramótaskaup og staka gamansöngva, auk þess sem hún dregur fram þá merku hefð sem skapast hefur í Vestmannaeyjum.

Þá sagði Una Margrét frá starfi Sigurgeirs Schevings á níunda áratug síðustu aldar og las upp úr verkum tengdum Eyjunum, sem vakti sérstaka athygli gestanna. Hún hefur helgað sig rannsóknum á revíusögunni í tæpan áratug og kom fyrri bók hennar, Gullöld revíunnar, út árið 2019.

Þórunn Rakel með nýja skáldsögu fyrir fullorðna

Þórunn Rakel Gylfadóttir, sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í barna- og ungmennaflokki fyrir bókina Akam, ég og Annika, mætti nú með sína fyrstu skáldsögu fyrir fullorðna: Mzungu.

Titillinn, sem á uppruna sinn í Austur-Afríku og merkir sá eða sú sem ráfar stefnulaust um, hefur í dag einkum verið notaður um Vesturlandabúa. Í bókinni segir Þórunn Rakel áleitana og spennandi sögu um það hvert góður vilji og löngun til að bæta heiminn getur leitt.

Áhugaverð og lifandi dagskrá

Bækurnar vöktu verðskuldaða athygli, og þótti blaðamanni sérstaklega gaman að heyra Unu Margréti leiklesa revíur úr Vestmannaeyjum. Ljóst er að metnaður og áhugi Leikfélags Vestmannaeyja hefur djúpar rætur, og væri vel þess virði að efna oftar til slíkra viðburða þar sem saga og starf félagsins væri kynnt samtímanum.

Þórunn Rakel Gylfadóttir les upp úr bók sinni.  Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

 

Kynningin gekk vel fyrir sig, þótt gott hefði verið að sjá fleiri á staðnum.  Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Nýjustu fréttir

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.