Arnar Breki framlengir við ÍBV
Arnar Breki Gunnarsson í leik með ÍBV. Ljósmynd: ÍBV

Eyjamaðurinn Arnar Breki Gunnarsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild ÍBV um þrjú ár. Frá þessu er greint í frétt á vefsíðu ÍBV. Arnar er 23 ára sóknarmaður sem hefur leikið í Vestmannaeyjum allan sinn feril, bæði með ÍBV og KFS.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur þessi frábæri og duglegi leikmaður leikið 140 leiki fyrir ÍBV og KFS en tæplega helmingur þeirra hefur komið í Bestu deildinni. Hann á að baki einn leik fyrir U21 árs landslið Íslands.

Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Arnari síðustu ár en þegar hann hefur haldist heill hefur hann leikið frábærlega og verið lykilmaður í liði ÍBV.

Knattspyrnuráð fagnar því að Arnar hafi ákveðið að verja næstu árum hjá ÍBV og bindur ráðið vonir við að Arnar geti hjálpað liðinu að ná markmiðum sínum á næstu árum, segir í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.