Í Vestmannaeyjum byrjaði að hvessa verulega um kvöldmatarleytið og kl. 19:00 var stöðugur vindur kominn í 40 m/s og 52 m/s í hviðum af norðvestri. Vindhraðinn var mikill fram á nótt og fór vind ekki að lægja fyrr en undir morgun. Þetta var mun meiri vindur en spáð hafði verið. Lögregla hafði varað við norðvestanáttinni, sem getur verið mjög skæð hér í Eyjum með sínum hvössu vindstrengjum sem skella á bænum. Íbúar höfðu verið beðnir að fergja allt lauslegt og lýst hafði verið yfir óvissuástandi vegna veðurspárinnar.
Björgunarfélag Vestmannaeyja og lögregla sinntu á annað hundrað útköllum vegna veðursins. Mestu tjónin voru á fiskimjölsverksmiðjunni FES en þar fór klæðning af norðurhlið hússins. Miklar skemmdir urðu einnig á skemmu Vinnslustöðvarinnar en þar fléttist dúkklæðning af stálgrindarhúsi. Þá var Eiðinu lokað fyrir allri umferð í gærkvöldi enda lausamunir á ferðinni og aðstæður hættulegar. Mestar fokskemmdir urðu á húsum á Illugagötu, þar fuku geymsluskúrar, þakklæðningar, girðingar og þakdúkar. Einnig urðu skemmdir á húsum á Flötum, Vestmannabraut, Brekastíg, Boðaslóð og fleiri götum. Rúður brotnuðu er hlutir fuku í þær. Járnplötur og þakdúkar losnuðu af húsþökum og fánastangir brotnuðu. Sendibíll lagðist á hliðina í óveðrinu og smábátar voru nálægt því að sökkva. Hátt var í og læti innan hafnar. Margt annað lauslegt fauk. Umhugsunarvert er hve víða illa er gengið frá ruslatunnum við hús en töluvert var um að þær væru á ferðinni í óveðrinu en mikil hætta er á að þær geti fokið í rúður og bíla og valdið tjóni. Lögreglan þakkar Björgunarfélagi Vestmannaeyja fyrir vel unnin störf, það sannast enn og aftur hve öflugt lið við eigum í BV. Um 30 björgunarfélagsmenn, ásamt öðrum aðstoðarmönnum unnu sleitulaust frá því fyrir kvöldmat og fram á morgun við að aðstoða fólk en kallað var eftir aðstoð kranabíls og smiðs til að byrgja glugga og fergja hluti sem voru að fjúka.
Fárviðri þetta er eitt versta veður sem menn muna eftir í Vestmannaeyjum og er vindátt úr norðvestri okkur afar erfið. Engin slys urðu á fólki vegna veðursins sem er helst því að þakka að fólk hélt sig innandyra og þá voru félagar björgunarfélagsins vel búnir. Enn er bálhvasst í Eyjum og verður fram eftir degi.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.