Frá og með nýliðnum áramótum er hægt að greiða fyrir ýmis gögn og þjónustu sem sýslumenn veita með kreditkortum.
Fram til þessa hefur einungis verið hægt að greiða fyrir slíka þjónustu með reiðufé eða debetkorti. Frá og með 1. janúar 2020 má þó einnig greiða með kreditkorti. Einnig má greiða með því að millifæra fjárhæðina sem verið er að greiða inn á reikning viðkomandi embættis. Þá er mikilvægt að fram komi fyrir hvað verið er að greiða (tilvísun eða skýring greiðslu). Nánar má sjá um þetta á vef sýslumannsembættanna.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.