Hvað er að vera Sjálfstæðismaður?
Hannes Kristinn Sigurðsson

Aðsend grein

Hannes Kristinn Sigurðsson

Að vera sjálfstæðismaður er, að mínu mati, fyrst og fremst að trúa á frelsi einstaklingsins og ábyrgðina sem því fylgir. Sú trú hefur mótað mína sýn og verið leiðarljós í minni þátttöku í stjórnmálum.

Undanfarin fjögur ár hef ég gengt ýmsum trúnaðarstörfum, meðal annars sem nefndarmaður í framkvæmda- og hafnarráði og setið í stjórn Sjálfstæðisflokksins. Sú reynsla hefur verið bæði krefjandi en jafnframt afar gefandi og styrkt mig í þeirri sannfæringu að virk þátttaka skiptir máli.

Að vera hluti af Sjálfstæðisflokknum finnst mér gefandi vegna þess að þar mætast skýr grunngildi og virðing fyrir ólíkum skoðunum. Fyrir mér vegur þyngst frelsi og trú á einstaklinginn, trúin á að allir sem vilja geti,  allir séu velkomnir. Að öllum sé frjálst að fara, en að það sé betra að vera, standa með sjálfum sér, sínum skoðunum og taka þátt í uppbyggilegu samtali.

Ég trúi á skoðanaskipti, samvinnu og það að vinna saman að betri Vestmannaeyjum.

Prófkjör er að mínu mati ein besta leiðin til að velja framboðslista, lýðræðislegt og gegnsætt ferli þar sem valið fer ekki fram við kaffiborðið heima, heldur meðal fólksins sjálfs. Í Sjálfstæðisflokkinn hafa allir með lögheimili í Vestmannaeyjum frelsi til að skrá sig, taka þátt og hafa áhrif á þann lista sem flokkurinn býður fram.

Ég hef því ákveðið að bjóða mig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í 4. – 5. sæti fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Ég óska eftir ykkar stuðning og hvet ég ykkur öll til að taka þátt, hvort sem er með framboði eða með því að nýta kosningaréttinn í prófkjörinu.

Áfram ég, þú og frelsið.

 

Hannes Kristinn Sigurðsson

Frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

 

Nýjustu fréttir

Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.