Víglundur Þór Þorsteinsson læknir er látinn

Víglundur Þór Þorsteinsson læknir lést á Landspítalanum í Fossvogi 20. febrúar, 91 árs að aldri. Víglundur fæddist á Brekku 24. júlí 1934 og ólst upp í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Ingigerður Jóhannsdóttir, húsfreyja, og Þorsteinn Þ. Víglundsson, skólastjóri og sparisjóðsstjóri.

Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu.

Á unglings- og menntaskólaárum stundaði Víglundur Þór verkamannavinnu, síldveiðar og landbúnaðarstörf. Hann lauk landsprófi frá Gagnfræðaskólanum vorið 1950 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni árið 1954. Íþróttakennaraprófi lauk hann frá Íþróttakennaraskóla Íslands árið 1955. Hann var kennari við Gagnfræðaskólann 1955–1956 og starfaði jafnframt sem þjálfari og íþróttakennari sumrin 1955–1958.

Víglundur lauk læknaprófi í febrúar 1964 og bandaríska útlendingaprófinu í læknisfræði í mars sama ár. Á kandídatsári starfaði hann við Sjúkrahús Vestmannaeyja, var staðgengill héraðslæknis og vann á sjúkrahúsum í Reykjavík. Hann stundaði sérnám og störf í Bandaríkjunum, lauk bandarísku sérfræðingaprófi og mastersprófi (MSc) frá University of Minnesota. Hann hlaut almennt lækningaleyfi á Íslandi árið 1965 og sérfræðingaleyfi árið 1971.

Víglundur starfaði við Jósefsspítala í Hafnarfirði og um skeið við Landakotsspítala. Hann rak jafnframt læknastofu í Læknastöðinni í Glæsibæ í Reykjavík og sinnti skurðlækningum kvenna í Handlæknastöðinni þar.

Víglundur sat í stjórn Félags íslenskra kvensjúkdómalækna 1981–1985, í stjórn Námssjóðs lækna 1981–1986 og í samninganefnd sérfræðinga innan Læknafélags Reykjavíkur 1985–1998. Hann var einn af stofnendum Handlæknastöðvarinnar í Glæsibæ árið 1983 og formaður stjórnar frá stofnun til 1989. Jafnframt var hann formaður stjórnar Læknastöðvarinnar í Glæsibæ 1985–1998.

Á efri árum fékkst hann meðal annars við að miðla fróðleik um Eyjar og Eyjafólk á vefnum Heimaslóð.is.

Eiginkona Víglundar var Fríða Jóhanna Daníelsdóttir, kennari og húsfreyja, sem lést árið 2023. Börn þeirra eru Sigrún (f. 1960), Þorsteinn Ingi (f. 1962), Víglundur Þór (f. 1966) og Ásgerður Edda (f. 1971). Barnabörnin eru sex og langafabörnin einnig sex að tölu.

Nýjustu fréttir

F​jölluðu um stöðu dómsmáls gegn félaginu
Víglundur Þór Þorsteinsson læknir er látinn
Hvað er að vera Sjálfstæðismaður?
Af hverju er heita vatnið svona dýrt?
Samgöngur hafa ekki stoppað Miðflokkinn
Eru samgöngur að stoppa þingmenn okkar?
Nýtt tölublað Eyjafrétta komið út: Loðnan, kosningabaráttan og forsetaheimsókn
Kristín Klara í lokahóp u-17
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.