Rauði Krossinn var stofnaður í Arnardrangi á sínum tíma og húsið sjálft á sér merka sögu. Aðal hvatamaður að stofnun deildarinnar var Ólafur Ó. Lárusson, héraðslæknir, sem lét reisa Arnardrang með það að markmiði að þar yrði sjúkrahús og heimili. Í gegnum tíðina hefur húsið gegnt margvíslegum hlutverkum – meðal annars hýst tónlistarskólann – en síðustu þrjá áratugi hefur það verið miðstöð starfsemi Rauða krossins og Krabbavarnar í Eyjum.
Frá fyrstu árum hefur Rauði krossinn verið burðarás í velferð Eyjamanna. Í upphafi beindist starfið að umönnun sjúkra og stuðningi við þá sem minna máttu sín, en félagið ruddi einnig brautina þegar kom að sjúkraflutningum með kaupum á fyrsta sjúkrabílnum í Eyjum.
Reynslan hefur þó sýnt að hlutverk félagsins nær langt út fyrir daglegt starf. Þegar eldgosið hófst árið 1973 reyndi verulega á viðbragðsgetu samfélagsins. Þá steig Rauði krossinn fram, skipulagði móttöku og aðstoð og sinnti lykilhlutverki í einni stærstu neyðaraðgerð í sögu Eyjanna. Sú reynsla mótaði starf félagsins til framtíðar, og síðan þá hefur það komið að uppsetningu fjöldahjálparstöðva þegar áföll hafa dunið yfir.
Í dag er starfsemin fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr. Sjálfboðaliðar sinna meðal annars heimsóknum til fólks, akstursaðstoð, fatasöfnun og prjónaverkefnum, auk þess að halda skyndihjálparnámskeið fyrir almenning. Þá er félagið lykilaðili í neyðarviðbrögðum og er með skipulagt viðbragð á neyðarstundum.
Að sögn formanns deildarinnar, Ólafs Jóhanns Borgþórssonar, er starfsemi félagsins ekki síður mikilvæg í dag en áður – en hún byggir á sjálfboðaliðum. „Við þurfum fleiri hendur á dekk,“ segir hann og bendir á að sérstaklega vanti fólk á útkallslista, sem sé tilbúið að bregðast við þegar á reynir, bæði með líkamlegri og sálrænni aðstoð. Starf Rauða Krossin gangi út á framlag sjálfboðaliða og við sjáum það í gegnum söguna að það starf sem hefur verið gefið í nafni Rauða Krossins hefur jafnvel breytt samfélögum og hefur jafnframt verið dýrmætt fyrir sjálfboðaliðana sjálfa. Það er gott að gefa af sér. En Ólafur tekur fram að mikil áhersla sé lögð á góða þjálfun þeirra sem taka þátt.
Afmælið er því ekki aðeins tilefni til að líta til baka, heldur líka fram á veginn. Á sunnudaginn gefst Eyjamönnum tækifæri til að stíga inn í söguna – bókstaflega – í Arnardrangi, hitta fólkið á bak við starfið og sjá hvernig það heldur áfram að þróast.
Allir eru velkomnir.