Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 

Það hefur margt breyst frá því þessi mynd var tekin. Tekin að vetrarlagi en hvenær vitum við ekki. Guðmundur Jónsson í Safnahúsi sendi okkur myndina sem er úr ljósmyndasafni Vestmannaeyjabæjar. Sýnir hún svæðið þar sem kartöflugarðarnir voru í notkun allt fram til 1973 að uppbygging hófst í kjölfar gossins 1973. 

Í athyglisverðri grein Árna Árnasonar, símritara um lífskjör þurrabúðarmanns í Eyjum um aldamótin 1900 segir: Kartöfluræktun hér hóf fyrst Jóhanna Roed veitingakona um 1850. Útsæðið var frá Skotlandi, blárauðar kartöflur, er reyndust hér mjög vel og voru lengi við líði hér. Frá eyjunum barst kartöfluræktunin til nærsveitanna á landi. Árið 1853 voru hér 60 kálgarðar, frá 7 ferföðmum að stærð.  

Langstærsti garðurinn var 61 ferfaðmur. 1859 var kálgarðatalan komin upp í 100 og margir garðanna yfir 60 ferfaðmar og upp í 110 ferfaðma. 1907 voru kartöflugarðar hér alls að stærð 15519 ferfaðmar. Uppskera þá af garðávöxtum hjá þeim, er mest höfðu, 20—30 tunnur og þar yfir. Sigurður Sveinsson í Nýborg skaraði fram úr í kartöflurækt. Kartöflurækt er nú orðin allmikil hér. Ræktun á matarkáli er nú töluverð, sem og rabarbara.“

Nýjustu fréttir

Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.