Klukkan 15.00 í dag var tíu mínútna meðalvindur á Stórhöfða 37 metrar á sekúndu og mesta hviða var 48 metrar á sekúndu. Í morgun var snjókoma og síðar slydda og rigning og slapp á götum.
Herjólfur fór til Þorlákshafnar í morgun og er á leið í seinni ferð dagsins. Örugglega ljúft leiði á lensinu til Þorlákshafnar og þokkalegt á móti á bakaleiðinni í rúmlega 4 metra ölduhæð.
Flestir bátar eru á sjó og ekki vitað um tjón.
Norðaustan- og austan 13-20 m/s og snjókoma, en 23-28 sunnantil. Líkur á slyddu eða rigningu allra syðst. Bætir í vind og ofankomu austantil síðdegis, 18-25 þar undir kvöld, en fer þá að draga úr vindi og ofankomu sunnanlands. Hiti um eða undir frostmarki, en að 8 stigum með Suðurströndinni.
Norðan 8-15 á morgun og víða snjókoma eða él, en 13-20 á Austurlandi. Dregur úr ofankomu síðdegis. Þurrt að mestu sunnantil. Frost 1 til 7 stig.
Spá gerð: 23.03.2026 15:03. Gildir til: 25.03.2026 00:00.
Á miðvikudag:
Yfirleitt breytileg átt 3-10 m/s, en norðvestan 13-20 austantil fram eftir degi. Víða líkur á dálitlum éljum, en bjart að mestu á Suðaustur- og Austurlandi. Frost 2 til 10 stig.
Á fimmtudag:
Gengur í suðaustan 18-25 m/s með snjókomu, en síðar rigningu eða slyddu. Úrkomuminna norðaustantil og hægari vindur þar fram eftir degi. Hlýnar talsvert. Dregur úr vindi sunnan- og vestantil seinnipartinn með skúrum eða slydduéljum.
Á föstudag:
Suðvestlæg átt, en norðlægari norðvestantil. Slydda eða snjókoma með köflum, en þurrt að kalla austanlands. Hiti um eða yfir frostmarki.
Á laugardag:
Suðlæg eða breytileg átt og él, en slydda eða rigning sunnan- og vestantil. Úrkomulítið norðaustantil. Hlýnar heldur.
Á sunnudag:
Norðvestan- og vestanátt og víða líkur á éljum, en slyddu með ströndinni. Kólnar í veðri.
Spá gerð: 23.03.2026 08:34. Gildir til: 30.03.2026 12:00.
Djúp lægð er nú stödd suður af landinu sem veldur snjókomu og hvassviðri víða um land en stormi allra syðst, enda gular vinda- og hríðaviðvaranir víða í gildi eða taka gildi með kvöldinu. Það dregur úr vindi og úrkomu sunnan- og vestanlands með kvöldinu en þá bætir í vind og ofankomu austanlands. Þar verður gul hríðarviðvörun í gildi fram til hádegis á morgun, sú síðasta í þessum skammti, þegar lægðin verður komin norðaustur af landinu.
Veður.is
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.