Aðalfundur Krabbavarnar í Vestmannaeyjum fór fram í gær þar sem farið var yfir starfsemi félagsins og horft til komandi verkefna.
Stjórn félagsins stendur að mestu óbreytt frá fyrra ári. Ein breyting varð þó á stjórninni þegar Kristín Valtýsdóttir lét af störfum eftir tíu ára setu. Var henni þakkað sérstaklega fyrir sitt framlag og mikilvægt starf í þágu félagsins á þeim tíma.
Á fundinum bárust einnig góðar gjafir til starfseminnar en þau Magnús Sveinsson og Sjöfn styrktu Krabbavörn með peningagjöf. Slíkur stuðningur skiptir miklu máli fyrir starf félagsins og áframhaldandi verkefni þess í þágu samfélagsins.
Óskar Pétur var á staðnum og smellti myndum.