Karlalið ÍBV í handbolta er úr leik í úrslitakeppni Olís deildar karla eftir tap gegn KA , í 8-liða úrslitum á Akureyri í dag. Leiknum lauk með eins marks sigri KA, 25-24, og því sigraði KA einvígið 2-0.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og skiptust liðin á að vera með forystuna. Eyjamenn náðu tveggja marka forystu eftir tíu mínútna leik en þegar stundarfjórðungur var liðinn leiddu KA menn með einu marki. KA menn voru ögn sterkari í lok fyrri hálfleiks og leiddu með tveimur mörkum, 13-11 í hálfleik.
KA menn byrjuðu síðari hálfleikinn töluvert betur og náðu fimm marka forskoti, 17-12, á upphafs mínútunum. Eyjamenn komu sterkir til baka og náðu að jafna leikinn í 20-20 þegar tæpur stundarfjórðungur var til leiksloka. Allt var í járnum á lokakafla leiksins og var staðan jöfn, 24-24. ÍBV fékk tækifæri til að komast yfir, fyrst Hákon Daði Styrmisson úr vítakasti en Ágúst Elí Björgvinsson, markvörður KA sem átti stórleik, sá við honum. Nökkvi Snær Óðinsson fékk svo annað tækifæri þegar rúmar 20 sekúndur voru eftir en Ágúst Elí varði aftur. Það var svo Dagur Gautason sem tryggði KA mönnum sigurinn þegar sjö sekúndur voru eftir. Lokatölur leiksins, 25-24.
Það er því ljóst að lið ÍBV er komið í sumarfrí en KA menn fara áfram í undanúrslitin ásamt Valsmönnum sem sendu HK í sumarfrí í kvöld. Valur vann fjögurra marka sigur 28-32.
Dagur Arnarsson, leikmaður ÍBV, var markahæstur í leiknum með sex mörk. Petar Jokanovic varði fjögur skot í marki ÍBV og Morgan Goði Garner þrjú.
Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 6 mörk, Elís Þór Aðalsteinsson 5, Hákon Daði Styrmisson 5, Anton Frans Sigurðsson 3, Sigtryggur Daði Rúnarsson 2, Daníel Þór Ingason 1, Róbert Sigurðsson 1, Sveinn José Rivera 1.