Sundlaugin opnaði aftur í dag eftir að hafa verið lokuð um tíma vegna viðgerða.
Af því tilefni var gestum og gangandi boðið upp á kaffi og köku við opnunina og streymdu gestir inn á slaginu 15 til þess að skella sér í laugina.
Margir hafa beðið eftir opnuninni og var því ánægjulegt að sjá lífið færast aftur í laugina.





