Appelsínugular viðvaranir gefnar út
Austan stormur eða rok og snjókoma
Skjáskot/vedur.is

Veðurstofan hefur gefið út appelsínugular viðvaranir fyrir Suðurland, Faxaflóa, Suðausturland og Miðhálendið. Áður hafði verið gefin út gul viðvörun vegna veðurs á öllu landinu.

Ef horft er á Suðurland þá tekur sú gula gildi klukkan 7 í fyrramálið. Klukkan 12 á hádegi tekur við appelsínugul viðvörun í landshlutanum og gildir hún til kl. 20.00 samdægurs.

Í viðvörunartexta fyrir appelsínugulu viðvörunina segir: Austan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Snjókoma eða slydda og skafrenningur með slæmu skyggni og versnandi færð, en víða rigning undir kvöld. Ekkert ferðaveður. Einnig eru líkur á foktjóni og er fólk hvatt til að huga að lausamunum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Sunnan 13-20 m/s og skúrir, en úrkomulítið norðaustanlands. Heldur hægari vindur seinnipartinn. Hiti 3 til 9 stig.

Á miðvikudag:
Suðlæg átt 8-15 og rigning, en úrkomulítið á Norðausturlandi. Dregur úr vindi vestantil eftir hádegi. Hiti 2 til 7 stig.

Á fimmtudag:
Suðvestlæg átt 5-13 og skúrir, en kólnar með éljum seinnipartinn. Lengst af þurrt austanlands. Hiti nálægt frostmarki um kvöldið.

Á föstudag:
Austlæg eða breytileg átt og snjókoma eða slydda, en hlýnar með rigningu, fyrst sunnantil. Hiti 0 til 5 stig síðdegis, en norðaustanátt, áfram snjókoma og vægt frost norðvestantil.

Á laugardag:
Gengur í norðlæga átt með éljum, en styttir upp sunnan heiða. Hægari og þurrt austantil fram á kvöld. Kólnandi veður, frost 0 til 7 stig um kvöldið.
Spá gerð: 05.04.2026 08:06. Gildir til: 12.04.2026 12:00.

Veður.is.

Nýjustu fréttir

Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.