Engin lognmolla í nýju starfi
Kári Hrafn hefur í mörg horn að líta hjá Vinnslustöðinni. Ljósmynd/vsv.is

Kári Hrafn Hrafnkelsson hefur tekið við sem verkstjóri í löndun og frystigeymslu hjá Vinnslustöðinni á sama tíma og vertíð stendur sem hæst. Í viðtali við fréttasíðu Vinnslustöðvarinnar segir hann fyrstu vikurnar hafa gengið vel.

Hann er fæddur og uppalinn á Egilsstöðum en hefur undanfarna áratugi búið í Vestmannaeyjum. Kári kemur til starfans með góða reynslu úr fiskvinnslu, meðal annars sem verkstjóri hjá Leo Seafood, þar sem hann sinnti löndunum, útskipunum og samskiptum við flutningsaðila.

Hann segir fyrstu vikurnar í nýju starfi hafa gengið vel, þó margt sé nýtt að læra. „Mér finnst ganga ágætlega að koma mér inn í starfið, en ég hef lagt áherslu á að kynnast starfseminni í frystigeymslunni þar sem ég þekki betur til hins hluta starfsins,“ segir Kári. Hann bætir við að margt í starfinu sé honum kunnugt frá fyrra starfi, en umfangið hjá Vinnslustöðinni sé þó talsvert meira.

Í Leo Seafood hafði Kári umsjón með löndunum og útskipunum og var í góðu samstarfi við starfsfólk Vinnslustöðvarinnar eftir að fyrirtækið varð hluti af hennar starfsemi. Sú reynsla nýtist honum vel í nýju hlutverki, enda snýst stór hluti starfsins áfram um móttöku afla og skipulagningu tengdra verkefna. Þá hefur reynsla hans af Navision-tölvukerfinu og bókhaldi einnig komið sér vel, sérstaklega í vinnunni í frystigeymslunni, þó hann viðurkenni að þar sé enn ýmislegt ólært.

Það sem hefur komið honum mest á óvart eru umsvifin í starfseminni. „Þó ég hafi vitað að umsvifin væru meiri en ég þekkti áður, þá kemur það mér samt á óvart hvað þau eru mikil, sérstaklega í útskipunum, bæði á saltfiski og frosinni vöru,“ segir hann.

Öðruvísi vertíð og annasamir dagar

Vertíðin leggst vel í Kára, þó hún sé að einhverju leyti frábrugðin því sem hann á að venjast. Hann hefur til dæmis ekki áður unnið við uppsjávarlandanir og segir það hafa verið spennandi viðbót við reynslubankann.

Að hans mati hefur vertíðin þó verið rólegri en oft áður þegar kemur að bolfisklöndunum í Vestmannaeyjum. Þar spila samgöngur stórt hlutverk, en bátar hafa í auknum mæli landað uppi á landi þar sem erfiðlega hefur gengið að koma fiski frá Eyjum. Þá hafa veðuraðstæður einnig haft áhrif, þar sem brælur hafa orðið til þess að meira hefur verið landað fyrir vestan en venjulega.

Dagarnir í starfinu eru fjölbreyttir og yfirleitt annasamir. Kári byrjar gjarnan daginn í frystigeymslunni, þar sem hann vinnur að því að kynnast starfseminni betur, en fer einnig reglulega á skrifstofuna við Smárabar þar sem hann fer yfir stöðuna með samstarfsfólki. Samskipti fara þó að miklu leyti fram í gegnum síma yfir daginn.

Hann segir starfið muni þróast á næstu misserum, þar sem hann verði meira á ferðinni milli starfstöðva og sinni verkefnum í auknum mæli frá skrifstofu. „Ég hlakka til að takast á við starfið áfram og vinna með nýju fólki,“ segir Kári að lokum.

Viðtalið á vsv.is.

Nýjustu fréttir

Engin lognmolla í nýju starfi
Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?
Atli Steinn Arnarson semur við ÍBV
World Class mun rísa samhliða búningsklefunum
Skvísubúðin fagnar vori og sumri með fjölbreyttu vöruúrvali 
Stelpurnar æfa af krafti fyrir úrslitakeppnina
Vestmannaeyjar – staður þar sem fjölskyldan blómstrar
Sólarupprás og helgistund markaði páskadag í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.