Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins.
Nafn: Anton Örn Björnsson
Aldur: 34 ára
Fjölskylda: Ég er giftur Ástu Lilju Gunnarsdóttur, þroskaþjálfa og saman eigum við tvo stráka Emil Mána 7 ára og Birni Rafn 4 ára. Foreldrar mínir eru Björn Elíasson og Emilía María Hilmarsdóttir. Systkini mín eru tvö Hilmar Ágúst Björnsson og Elísa Björk Björnsdóttir.
Menntun og störf: Ég er kennari og tómstunda- og félagsmálafræðingur. Einnig er ég með diplómu í samskiptum og forvörnum. Í dag starfa ég sem kennari í 5. bekk í Barnaskóla Vestmannaeyja.
Fyrri afskipti af stjórnmálum: Mín helstu afskipti af stjórnmálum eru í góðum fjölskylduboðum og í góðum vinahóp.
Af hverju Eyjalistinn? Það er auðvelt svar. Ég á mestu samleið með Eyjalistanum. Það er auðvelt að líða vel hjá okkur. Í Eyjalistann eru öll velkomin. Öll skipta máli, allar hugmyndir eru góðar hugmyndir. Við einblínum ekki á hægri/vinstri pólitík. Við leggjum áherslu á staðbundinn mál og eru hagsmunir Vestmannaeyja alltaf í forgrunni. Við erum staðbundið félag sem er ekki bundið neinu öðru en hagsmunum Vestmannaeyja.
Brýnustu verkefni: Halda áfram á þeirri góðu vegferð sem Eyjalistinn hefur verið á. Hér hefur verið mikil uppbygging og er mikilvægt að halda því áfram. Við megum ekki sofna á verðinum og er nauðsynlegt að fara að mynda ákveðna framtíðarsýn fyrir börnin okkar og samfélag. Ný leikskólabygging þarf að rísa sem fyrst og framtíðarsýn fyrir íþróttamannvirki okkar er nauðsynleg. Á næstu árum verður töluverð fólksfjölgun og þurfum við að fara að huga að því hvernig við ætlum að mæta þeirri fólksfjölgun og þá er hægt að telja upp skólabyggingarnar okkar, samgöngumál og húsnæðismál sem við þurfum alltaf að vera að huga að.
Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á: Öll þau mál sem snúa að börnunum okkar og þar má helst nefna menntamál, frístunda- og félagsstarf, íþróttamál, nærumhverfið, söfnin, lista og menningarmál og svo má lengi telja.
Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja: Ég sé Vestmannaeyjar fyrir mér sem blómlegt og öflugt samfélag þar sem fjölskyldufólk og börn fá að njóta sín til hins ítrasta. Framtíðin felst í því að við nýtum kraftinn í fólkinu okkar og byggjum upp innviði sem styðja við vöxt hvort sem það er nýr leikskóli, framtíðarsýn fyrir íþróttasvæðið eða öflugt menntakerfi.
Ég sé fyrir mér samfélag sem þorir að horfa fram á við og mæta fólksfjölgun með því að tryggja nægt húsnæði og öruggar samgöngur, án þess að missa sjónar á þeirri einstöku samfélagsgerð sem við eigum. Framtíð Eyjanna á að einkennast af samvinnu og virkri hlustun, þar sem hagsmunir heildarinnar eru alltaf í forgrunni og allir íbúar, ungir sem aldnir finni að þeir eigi rödd og skipti máli í mótun bæjarins okkar.
Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Eyjalistans: Seigla og kraftur. Jákvæðni og hugulsemi. Hógværð og aðgætni. Til að draga þessi orð saman þá er mikill kraftur og seigla í því sem ég tek mér fyrir hendur. Ég er einstaklega jákvæður og sýni mikla hugulsemi í þeim störfum sem ég sinni og tel ég það vera mikinn mannkost. Ég legg mikla áherslu á virka hlustun, eftirtektarsemi og tillitssemi. Í lokin vill ég segja ég er frekar hógvær og aðgætinn. Margir telja það sem ókost en ég horfi á það sem mikinn mannkost. Ég er með raunsæja mynd af sjálfum mér og veit hvaða kosti og galla ég hef. Ég er mjög varkár í samskiptum og vill bera ábyrgð. Ég er traustur og yfirvegaður. Hógvær og aðgætinn leiðtogi tekur ekki allan heiðurinn af vel heppnuðu verkefni, hann fer yfir öll skref áður en ákvörðun er tekinn til þess að lágmarka áhættu.
Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Það er sérstaða Vestmannaeyja og velferð samfélagsins. Hér í Vestmannaeyjum eigum við öll að skipta máli og hér viljum við öllum líði vel. Við þurfum að tryggja það að raddir okkar heyrist og að hér þurfi enginn að upplifa sig þannig að hann eða hún skipti ekki máli. Hér á að vera gott að búa og við sem bjóðum okkur fram í þetta verkefni þurfum að tryggja það að hagsmunir Vestmannaeyja verði í fyrsta sæti en ekki sér hagsmunir fárra.